Kennarar og starfsfólk Jógasetursins

Í Jógasetrinu starfa frábærir kennarar með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Verið hjartanlega velkomin í fjölbreytta stundaskrá.

  • Auður Bjarnadóttir
    Auður Bjarnadóttir

    Jógaflæði, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Jóga fyrir 60+, Kundalini jóga og Jóga Nidra

    Auður Bjarnadóttir, stofnandi og eigandi Jógasetursins.

    Auður Bjarnadóttir

    Jógaflæði, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Jóga fyrir 60+, Kundalini jóga og Jóga Nidra

    Auður Bjarnadóttir, hefur kennt jóga síðan 2000. Árið 1999 tók hún sitt fyrsta kennarapróf, hatha/ashtanga í “Mount Madonna” í Kaliforníu. Meðgöngujóganámið hófst í Seattle árið 2000, á Kripalu Center árið 2002 og hjá hinni víðfrægu Gurumukh ‘Khalsa Way’ árið 2005.

    Auður útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2005 í New Mexico. Hún er einnig með kennararéttindi í Yoga Nidra og Yoga Therapíu frá Amrit Institute í Florida. Árið 2012 tók hún Diploma sem Dáleiðslutæknir haustið 2012 frá The International School of Clinical Hypnosis. Auður hefur sérhæft sig í meðgöngujóga og fæðingarfræðum og tók Doulu námi hjá Hönd í Hönd 2011 og HypnoBirth námskeið. Árið 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni okkar og 2012 gaf hún út Krakkajóga DVD mynd ásamt “Erumenn”. Auður hefur kennt víða og haldið utan um ýmis námskeið í Jógasetrinu, ma. Kennarnám í Kundalini Jóga og fleiri fjölbreytt námskeið.

    Auður elskar að kenna en líka að læra og lítur á sig sem eilífan nemanda í jóga, og að lifa lífinu lifandi. Auður kennir Kundalini jóga, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Hatha jóga og Jóga Nidra, leiðir Kennaranám í Kundalini og fleira. Auður hefur einnig leitt jógaferðir á fjöllum og síðustu ár hefur hún einnig kennt íslenskum og erlendum hópum á Krít og Corfu á Grikklandi.

  • Arna Rín Ólafsdóttir
    Arna Rín Ólafsdóttir

    Jógaflæði, Mjúkt Jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga og Mömmujóga

    Arna Rín - Jógakennari í jógasetrinu

    Arna Rín Ólafsdóttir

    Jógaflæði, Mjúkt Jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga og Mömmujóga

    Arna Rín Ólafsdóttir lauk fyrsta kennaranámi sínu hjá Jógasetrinu árið 2013. Í framhaldi af því hefur hún lokið krakkajóga kennararéttindum, 500klst réttindum í hatha jóga, pranajóga og Jóga nidra. Hún hefur einnig lokið framhaldsréttindum í Jóga Nidra ásamt Jóga Nidra fyrir börn frá Amrit Yoga setri í Flórída þar sem hún bjó, iðkaði jóga og starfaði um hálf ár. Arna hefur lengi verið hluti af jógaseturs teyminu og hefur haldið utan um fjölda tíma og námskeiða. Arna er einnig menntaður heilsumarkþjálfi, hefur lokið fyrsta stigi í Reiki heilun og hefur djúpan áhuga á heildrænni heilsu.

    Arna kennir tíma sína með áherslu á að byggja sterkara traust til líkamans og læra að heiðra skilaboð hans með virðingu og kærleika. Hún býður þannig upp á rými fyrir iðkendur til þess að upplifa hve djúpt líkaminn er tilbúinn að fara í hvert sinn sem mætt er á dýnuna. Að fara inn í kærleikann í gegnum mýktina.

  • Ástrós Erla Benediktsdóttir
    Ástrós Erla Benediktsdóttir

    Meðgöngujóga

    Ástrós Erla, jógakennari í Jógasetrinu

    Ástrós Erla Benediktsdóttir

    Meðgöngujóga

    Ástrós Erla starfar sem jógakennari, heilari og félagsráðgjafi. Í jógakennslunni leggur hún mikla áherslu á að einstaklingar fái hin ýmis tól til að tengjast sjálfu sér betur í gegnum vinnu með huga, líkama og sál. Hún blandar saman ýmsum fræðum til að einstaklingar fái heildrænar leiðir að bættri líkamlegri og andlegri heilsu. Í tímunum blandar hún saman líkamlegum jógaæfingum, hugleiðslu, öndunaræfingum, æfingum fyrir orkulíkama, núvitund og sjálfstyrkingu.

  • Birgir Þorsteinn Jóakimsson
    Birgir Þorsteinn Jóakimsson

    Karlajóga

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson, jógakennari í Jógasetrinu

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson

    Karlajóga

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson hefur haft áhuga á jógafræðunum frá því hann var unglingur. Hann lauk kennaranámi hjá Jóga stúdíói og Yogi Shanti Desai sumarið 1998. Birgir hefur kennt fólki á öllum aldri á hinum ýmsu stöðum frá árinu 1998 meðfram starfi sínu sem grafískur hönnuður. Hann er mikill áhugamaður um hlaup, hjólreiðar og nú síðast sjósund sem hann stundar af töluveðri ástríðu. Birgir trúir því að lykillinn að því að verða góður jógakennari sé að þykja alveg óendanlega vænt um þá sem hann er að kenna. Þá kemur allt hitt að sjálfu sér.

  • Brynja Gunnarsdóttir
    Brynja Gunnarsdóttir

    Meðgöngujóga, jóga nidra og kundalini jóga

    Brynja Gunnarsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Brynja Gunnarsdóttir

    Meðgöngujóga, jóga nidra og kundalini jóga

    Brynja Gunnarsdóttir hefur kennt í Jógasetrinu síðan 2013. Hún lauk jógakennaranámi í Kundalini jóga árið 2013 og Jóga Nidra árið 2015. Hún hefur sótt ýmis námskeið og viðburði tengda jóga, öndun, og hugleiðslu. Jóga er svo miklu meira en að mæta á dýnuna og gera æfingar, jóga er lífstíll og hugarfar sem tengir líkama, huga og sál.

  • Edda Björgvinsdóttir
    Edda Björgvinsdóttir

    Jóga fyrir 60+

    Edda Björgvinsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Edda Björgvinsdóttir

    Jóga fyrir 60+

    Edda Björgvins er leikkona og fyrirlesari með MA í menningarstjórnun, diplóma á MA stigi í Jákvæðri sálfræði og Sálgæslu frá Háskóla Íslands. Edda hefur nýverið lokið námi sem jógakennari frá Jógasetrinu og einnig lokið námi sem Jóga Nidra kennari.

    Hún hefur meðfram leiklistinni haldið fyrirlestra og námskeið þar sem í boði er m.a. tjáning, styrkleikaþjálfun, húmor og gleði, heilsuefling, hamingjuþjálfun, sjálfsstyrking og margt fleira. Edda hefur sérstakan áhuga á að læra meira .. og meira (meira í dag en í gær)

  • Edda Jónsdóttir
    Edda Jónsdóttir

    Mjúkt jóga og Jóga nidra

    Edda Jónsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Edda Jónsdóttir

    Mjúkt jóga og Jóga nidra

    Edda Jónsdóttir á að baki nám í Jóga Nidra, Kundalini Jóga og nú síðast Hatha Jóga byggt á nálgun Vandu Scaravelli. Nálgun sem leggur áherslu á jarðtengingu, hlustun og forvitni í allri iðkun.  Að auki hefur hún sótt fjölmörg námskeið tengd jóga og heilsu og menntunar á sviði flot- og vatnsmeðferðarvinnu sem hún starfar einnig við. Edda hefur sótt ýmis námskeið sem nýtast henni í þeirri vinnu t.a.m. jógaþerapíu, flotþerapíu og Acquatic Massage Therapy. Helstu áhugamál eru fjölbreytt hreyfing og útivera ásamt ótalmörgu sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu. Edda kennir Mjúkt jóga og Jóga nidra.

  • Elva Rut Helgadóttir
    Elva Rut Helgadóttir

    Ljósmóðir og jógakennari

    Elva Rut, jógakennari í Jógasetrinu

    Elva Rut Helgadóttir

    Ljósmóðir og jógakennari

    Elva Rut er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún hefur starfað sem ljósmóðir  í Hreiðrinu og á fæðingarvakt LSH  á árunum 2006-2018. Í maí 2017 hóf hún störf í Björkinni sem er ljósmæðrastýrð fæðingarstofa og sinnir þar konum í mæðravernd, fæðingu og heimaþjónustu.

    Elva fékk áhuga á jóga þegar hún var að sinna konum í fæðingu sem höfðu stundað jóga á meðgöngu og fannst áhugavert hvað jóga hjálpaði konum í fæðingunni. Elva útskrifaðist sem kundalini jógakennari árið 2015, meðgöngu jógakennari árið 2016 og jóga nidra kennari árið 2018.

    Elvu er mjög umhugað um að styðja við og fræða konur á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir fæðingu, og þá sér í lagi aðstyðja við val og óskir kvenna.Elvu er hugleikið að hvetja barnshafandi konur til að gefa sér tíma til að stunda jóga á meðgöngu, því það er falleg gjöf sem hin barnshafandi kona gefur sér, barninu sínu og fjölskyldu sinni.

  • Estrid Þorvaldsdóttir
    Estrid Þorvaldsdóttir

    Kundalini jóga

    Estrid Thorvaldsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Estrid Þorvaldsdóttir

    Kundalini jóga

    Estrid Þorvaldsdóttir, byrjaði í kundalini yoga kennararnámi í september 2008. Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan, hefur notið vaxandi vinsælda og er stundum kallað jóga hins vinnandi fólks. Estrid starfar sem yoga kennari og ráðgjafi og leiðsögumaður um fjöll og fyrnindi. Hún er í framhaldsnámi í kundalini yoga fræðum.  Hún vinnur einnig með orkustöðvar heilun byggt á vísindum kundalini yoga og veitir persónulega ráðgjöf við að finna út hvaða orkustöðvar eru í ójafnvægi og veita hugleiðslur og yogaæfingar sem hjálpa viðkomandi finna þitt eðlilega ástand. Estrid kennir Kundalini jóga,  Orkustöðvanámskeið og er einnig með einkatíma í Orkustöðvarlestri.

  • Eva Hallbeck
    Eva Hallbeck

    Jóga fyrir 60+

    Eva Hallbeck, jógakennari í Jógasetrinu

    Eva Hallbeck

    Jóga fyrir 60+

    Eva hefur lokið 500 kennslustunda kennaraprófi í Hatha jóga og hefur kennt jóga í Las Vegas, Bandaríkjunum, síðan 2011. Árið 2021 fékk hún Iyengar jógakennararéttindi. Auk þess hefur Eva tekið ýmis námskeið í jógakennslu og jógafræðum.

    Hún byggir kennsluna sína á styrk, mýkt, nákvæmni, öryggi, núvitund og vellíðan.  

  • Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir

    Mjúkt Jóga og Jóga Nidra

    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, jógagkennari í Jógasetrinu

    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir

    Mjúkt Jóga og Jóga Nidra

    Guðrún Jóhanna eða Gunna eins og hún er kölluð, starfar sem ráðgjafi í mannauðsmálum í eigin fyrirtæki AUKI. Hún lauk sínu fyrsta kennaranámi í Kundalini jóga frá Jógasetrinu árið 2015. Síðan þá hefur hún lokið kennaranámi í Yoga Nidra hjá Kamini Desai bæði grunn- og framhaldsnámi, Vinyasa kennaranámi frá Radiantly Alive á Bali og nú síðast Yin og Traditional Chinese Medicine kennaranámi frá Tao yoga á Bali.

    Gunna heillaðist af jóga og hugleiðslu þegar hún fór í sinn fyrsta jógatíma í Jógasetrinu fyrir rúmlega 12 árum og getur ekki hugsað sér lífið án jóga sem fyrir hana er endalaust ferðalag og lærdómur.

  • Guðrún Theodóra
    Guðrún Theodóra

    Kundalini jóga, Meðgöngujóga og Jóga Nidra

    Guðrún Theodóra, jógakennari í Jógasetrinu

    Guðrún Theodóra

    Kundalini jóga, Meðgöngujóga og Jóga Nidra

    Guðrún Theodóra er menntaður meðgöngu- og kundalini jógakennari. Jógaástundunin hófst í meðgöngujóga hjá Auði Bjarna árið 2008. Eftir það hófst iðkun í kundalini jóga sem lauk með útskrift sem kundalini jógakennari árið 2011 (Jógasetrið, KRI), meðgöngujógakennari árið 2014 (The Mother’s Journey, Carolyn Cowan og Satya Kaur) og jóga nidra leiðbeinandi árið 2022 (Amrit Yoga Institute).

    Hún hefur sótt ótal námskeið til viðbótar tengd jóga og hugleiðslu eins og
    – Beyond Addiction. Námskeið þróað af Sat Dharam Kaur ND og Jivan Joti Kaur PhD sem samþættir kenningar Dr. Gabor Maté og fleiri sérfræðinga á fíknisviði.
    – Breath of Life (Ayurprana, Vasant Lad)
    – 3 framhaldsnámskeið í Kundalini jóga (Mind & meditation, Authentic relationships og Lifecycles & Lifestyles).
    – Innhverf Íhugun hjá Íslenska Íhugunarfélaginu.
    – Gong spilun hjá Arnbjörgu Konráðs.
    – SatNam Rasayan heilunartækni með Vivecku Pasquier.
    – Krakkajóga hjá Gurudass Kaur.

    Guðrún stundar nú framhaldsnám í ayurvedískri ráðgjöf og lýkur því í byrjun árs 2025.
    Hún starfar einnig sem aðstoðarmaður í fíknimeðferð hjá SÁÁ þar sem hún fær einnig að deila hugleiðslu, jóga og Nidra slökun til skjólstæðinga.

    Í kennslu leggur hún mikla áherslu á tengingu við andardráttinn til að styrkja líkamsvitundina og stýra huganum betur.
    Þannig komumst við dýpra inn á við og vöxum rólega í bestu útgáfuna af okkur sjálfum.

  • Halla Hákonardóttir
    Halla Hákonardóttir

    Jógaflæði og Jóga Nidra

    Halla Hákonardóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Halla Hákonardóttir

    Jógaflæði og Jóga Nidra

    Halla Hákonardóttir er jógakennari og vatnsmeðferðaraðili. Halla er með kennararéttindi í RA vinyasa jóga frá Radiantly alive á Balí, Jóga Nidra level 1&2 frá Amrit yoga institute og kundalini joga frá Jógasetrinu. Auk þess hefur hún sótt sér hin ýmsu námskeið til að dýpka eigin ástundun og þekkingu sína í fræðunum. Halla vinnur hjá Flothettu sem verkefnastjóri og flotmeðferðaraðili. Hún hefur sótt námskeið í gong, reiki heilun og thai jóga nuddi. Sem jógakennari leggur Halla áherslu á líkamlega meðvitund, frelsi í hreyfingu og djúpa tengingu við andardráttinn. Halla kennir Jógaflæði.

  • Halldóra Hanna Halldórsdóttir
    Halldóra Hanna Halldórsdóttir

    Meðgöngujóga

    Halldóra Hanna Halldórsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Halldóra Hanna Halldórsdóttir

    Meðgöngujóga

    Halldóra Hanna Halldórsdóttir eða Dóra eins og hún er kölluð, er starfandi jógakennari, hjúkrunarfræðingur á Líknardeildinni og ACC markþjálfi. Halldóra lauk jógakennaranámi í Jógasetrinu vorið 2023 og hóf samhliða náminu að kenna meðgöngujóga hjá Jógasetrinu, þá ófrísk af sínu fjórða barni. Halldóra hefur brennnandi áhuga á öllu sem viðkemur meðgöngu, uppeldi og andlegum málefnum. Hún hefur haldið fjölbreytt námskeið og fjölda fyrirlestra tengt heildrænni heilsu, hugarfari og andlegum málefnum.

  • Hildur Þórarinsdóttir
    Hildur Þórarinsdóttir

    Meðgöngujóga

    Hildur Þórarinsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Hildur Þórarinsdóttir

    Meðgöngujóga

    Hildur er menntaður lögfræðingur og starfar sem lögmaður. Hildur hefur stundað jóga frá árinu 2010, þegar hún kom í fyrsta jógatímann sinn, sem var meðgöngujóga hjá Auði í Jógasetrinu, og hefur síðan þá markvisst fléttað jóga inn í líf og starf.

    Í meðgöngujóganu kynntist Hildur töfrum jóga af eigin raun, og hvernig þeir nýtast sérstaklega vel á meðgöngu og í fæðingu. Hún útskrifaðist sem jógakennari frá Jógasetrinu árið 2023, og var þá barnshafandi af þriðja barninu sínu.

    Hildur brennur fyrir að styðja og hvetja barnshafandi konur og miðla þeirri þeirri þekkingu og reynslu sem hún hefur sjálf öðlast af því að nota jóga á meðgöngu, í fæðingu, og fyrstu vikurnar heima eftir fæðingu – sem nýtist síðan svo vel út í allt lífið.

    Fyrir utan jóga elskar Hildur hlaup, pilates og að kúra í sófanum heima, helst með krakkana sína í kringum sig.

  • Inga Rún Björnsdóttir
    Inga Rún Björnsdóttir

    Jóga Nidra námskeið

    Inga Rún Björnsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Inga Rún Björnsdóttir

    Jóga Nidra námskeið

    Inga Rún Björnsdóttir starfar sem klínískur sálfræðingur og jógakennari. Hún hefur mikinn áhuga á andlegri heilsu, innra jafnvægi og sérstaklega mikilvægi streitustjórnunar, slökunar, núvitundar, svefns og taugasálfræði. Hún er menntuð jógakennari frá Jógasetrinu hjá Auði Bjarnadóttur (200 stunda jógakennaranám í Hatha / Vinyasa og Amrit IAM Yoga) og hefur jafnframt lokið 20 stunda Yin Yoga kennaranámi frá Yoga Renew. Einnig er hún með IAM Yoga Nidra advanced kennararéttindi frá Amrit Yoga Institute / Kamini Desai.

    Inga Rún starfaði um árabil sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala og sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við HÍ. Í dag starfar hún sem klínískur sálfræðingur hjá Betri Svefn og Sálfræðiráðgjöfinni. Hún er með B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og Cand. Psych. próf í sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla, með áherslu á taugasálfræði og klíníska sálfræði.

    Inga Rún heldur reglulega utan um nærandi jóga nidra námskeið í Jógasetrinu þar sem hún fléttar sálfræðilegri þekkingu og bjargráðum inn í jógafræðin.

  • Júlía Dalrós Dagnýjardóttir
    Júlía Dalrós Dagnýjardóttir

    Meðgöngujóga

    Júlía Dalrós Dagnýjardóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Júlía Dalrós Dagnýjardóttir

    Meðgöngujóga

    Júlía er jógakennari og Doulunemi. Hún útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2016 og svo Jóga Nidra kennari árið 2018. Júlía hefur stundað jóga frá 16 ára aldri og hefur það umbeytt lífi hennar á þann hátt að hana langar til þess að opnað þennan heim fyrir fleirum. Júlía hefur einnig lokið Thai nuddnámskeiði sem hún nýtir sér meðal annrs fyrir barnshafandi konur. Því henni finnst fátt jafn gefandi og að vera stuðningur fyrir barnshafandi konur. Júlía er í Vikasa Hatha jógakennara námi auk þess sem hún sinnir því að vera tveggja barna móðir sem starfar á leikskóla þar sem hún elskar að fá að kenna krakkajóga. Júlía hefur brennandi áhuga á öllu því sem viðkemur meðgöngu, fæðingu og uppeldi.
    Júlía kennir Meðgöngujóga.

  • Katrín Eyjólfsdóttir
    Katrín Eyjólfsdóttir

    Jógaflæði, mjúkt jóga og jóga nidra

    Katrín Eyjólfsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Katrín Eyjólfsdóttir

    Jógaflæði, mjúkt jóga og jóga nidra

    Katrín er menntaður þroskaþjálfi og hefur starfað á því sviði í yfir 25 ár, meðal annars sem ráðgjafi við fjölskyldur fatlaðra og langveikra barna. Hún er einnig lærður sáttamiðlari.

    Katrín hefur stundað jóga í mörg ár og hefur brennandi áhuga á því hvernig jóga og hugmyndafræði þess geta stutt við líkamlega og andlega vellíðan. Hún leggur áherslu á að skapa öruggt og nærandi rými þar sem hver og einn getur mætt sjálfum sér af mildi, dregið úr streitu og fundið aukið jafnvægi.

    Hún útskrifaðist sem jógakennari frá Jógasetrinu árið 2023 og hefur lokið I AM Yoga Nidra® Immersion og Certification ásamt Yoga Nidra Advanced hjá Amrit Yoga Institute.

    Katrín hefur einnig lokið grunn- og framhaldsnámskeiði í gong-tónheilun hjá Arnbjörgu Kristínu og námi í tónheilun með kristalsskálum hjá Saraswati OM.

    Í Jógasetrinu kennir Katrín jógaflæði, mjúkt jóga og jóga nidra. Hún hefur einnig leitt námskeið með áherslu á jóga nidra og tónheilun, meðal annars fyrir mæður langveikra barna. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á meðvitund, nærveru og vellíðan, þar sem markmiðið er að þátttakendur fari út úr tímanum endurnærðir í líkama og huga.

  • Kristín Rósa Ármannsdóttir
    Kristín Rósa Ármannsdóttir

    Kundalini Jóga, Jógaflæði og Jóga Nidra

    Kristín Rósa Ármannsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Kristín Rósa Ármannsdóttir

    Kundalini Jóga, Jógaflæði og Jóga Nidra

    Kristín Rósa eða Rósa eins og hún er alltaf kölluð er jógakennari og jóga þerapisti. Hún er með kennararéttindi í jóga-Nidra og Hatha jóga frá Amrit Yoga Institute og í Vinyasa-flæði frá Radiantly Alive á Bali. Hún er einnig Kundalini jógakennari og hefur sótt framhaldsnámskeið í kundalini jóga, jóga-Nidra, og jógaþerapíu. Hún lærði Yoga therapiu hjá Kamini Desai og hefur nýlokið (mars 2026) Therapeutic jóganámi/heilandi jóga í Yoga Shala. Rósa er menntaður hjúkrunarfræðingur með meistarapróf í Lýðheilsuvísindum og í lokaverkefni sínu í lýðheilsuvísindum skrifaði hún sérstaklega um streitu og áhrif hennar á heilsu og líðan, og streitustjórnun. Hún hefur sótt námskeið í “stress -management og resilience training” frá Benson Henry Institute og lært markþjálfun hjá Profectus. Rósa hefur víðtæka reynsu af jógakennslu í Jógasetrinu og víðar. 

    Rósa kennir Kundalini og Jóga Nidra.

  • María Margeirsdóttir
    María Margeirsdóttir

    Kundalini jóga, Jóga fyrir 60+, Yin jóga, Jóga Nidra og Mjukt jóga

    María Margeirsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    María Margeirsdóttir

    Kundalini jóga, Jóga fyrir 60+, Yin jóga, Jóga Nidra og Mjukt jóga

    María Margeirsdóttir er menntaður grafískur hönnuður. Hún útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2015 og tók framhaldsnám í Kundalini jóga 2016 og 2018. Yoga Nidra Professional Training 2018 og Yoga Nidra Advanced Training 2019. Jógakennaranám „Að koma heim til þín“ 2021-22 og Yin jóga kennaranám 2023 og 2026 ásamt tveggja námskeiða í Gong tónheilun. María kennir Kundalini jóga, Jóga fyrir 60 plús, Jóga Nidra og Yin jóga. Kundalini jóga kynntist hún fyrst árið 2005 og heillaðist af þessum magnaða og umbreytandi lífstíll sem tengir saman huga, líkama og sál á svo góðan og fallegan hátt og hefur leitt ferðalagið á jógabrautinni áfram.

    María sér líka um skrifsofu Jógasetursins.

  • María Shanko
    María Shanko

    Krakkajóga fyrir 4-7 ára og 8-11 ára

    María Shanko, jógakennari í Jógasetrinu

    María Shanko

    Krakkajóga fyrir 4-7 ára og 8-11 ára

    María Ásmundsdóttir Shanko lærði stott-pilates 2005 bæði hérlendis og í Boston og þjálfaði í Hreyfingu 2005-2006. 2011 fór hún á leikjóganámskeið “Childplay” hjá Gurudass Kaur og 2013 útskrifaði hún sem kundalini jógakennari í Jógasetrinu. Hún lærði meðgöngu- og mömmujóga hjá Andartak veturinn 2014-2015 og stundar nú hatha jógakennaranám 2020-2021 hjá Ástu Arnardóttur í Yogavin. María kenndi jóga á Austurlandi á árunum 2016-2018, hefur kennt leikjóga í leikskólanum Öskju frá 2018 og leyst af í Jógasetrinu. Hún hefur unnið sem bekkjarkennari í grunnskólum, verið dagmóðir, skólastjóri yfir leik- og grunnskóla og hópstjóri í leikskólanum Öskju. Hún hefur reynslu af því að kenna jóga á öllum námstigum. María er auk þess menntaður framhaldsskólakennari í latínu og grísku með MA próf í þýðingafræði. Áhugamál hennar fyrir utan jóga er að dansa argentískan tangó, ferðast, syngja og útivist.

    María kennir krakkajóga 3-4 ára með foreldrum.

  • Rósa Matthíasdóttir
    Rósa Matthíasdóttir

    Kundalini Jóga, Jóga Nidra, Jóga fyrir 60 ára og eldri og Mjúkt Jóga

    Rósa Matthíasdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Rósa Matthíasdóttir

    Kundalini Jóga, Jóga Nidra, Jóga fyrir 60 ára og eldri og Mjúkt Jóga

    Rósa Matthíasdóttir langaði að verða jógakennari frá unga aldri. Hún er menntuð tækniteiknari, listfræðingur og master í leiðtogafærni og stjórnun. Síðan 2012 hefur Rósa kennt Kundalini Jóga ásamt Jóga Nidra síðan 2017, hvoru tveggja nam hún hjá Jógasetrinu. Rósa nýtir einnig MP-NLP (Neuro- Linguistic Programming) í kennslu sinni, sem er undirmeðvitundarfræði. Rósa hefur opnað sín eigin persónulegu litlu stúdíó á Akureyri, ásamt því að leiða eldri borgara í stólajóga í 3 vetur hjá Akureyrarbæ, meðfram því að fá að leiða tíma hjá Auði Bjarnadóttur eiganda Jógasetursins í gegnum árin. Jóga er lífsstíll, bæði líkama og sálar, jóga er að gera sitt allra besta öllum stundum, vera meðvitaður og bera ábyrgð á eigin upplifunum og lífi. Rósa kenninr Kundalini Jóga, Jóga Nidra, Jóga fyrir 60 ára og eldri og Mjúkt Jóga.

  • Sólveig Nikulásdóttir
    Sólveig Nikulásdóttir

    Jógaflæði, jóga Nidra og Kundalini

    Sólveig Nikulásdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Sólveig Nikulásdóttir

    Jógaflæði, jóga Nidra og Kundalini

    Sólveig Nikulásdóttir er menntaður framhaldsskólakennari og leiðsögumaður en hefur unnið í ferðaþjónustu um árabil og sem vöruþróunarstjóri hjá Iceland Travel. Sólveig starfar nú sem sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Hún útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2015 frá Jógasetrinu, lauk Hatha Vinyasa kennaranámi frá Maui Yoga Shala 2018 og 200 tíma kennsluréttindum í Sacred Geometry Vinyasa hjá Benjamin Sears árið 2021. Hún hefur einnig sótt Childplay jóganámskeið hjá Gurudass Kaur, lokið Jóga Nidra level 1 og level 2 frá Amrit Yoga Institute og 30 klst Yin Yoga kennararéttindum frá YogaWise. Hún hefur alla tíð elskað allskonar jóga og finnst fátt skemmtilegra en að bæta við sig þekkingu í jógafræðunum og deila áfram enda hefur hún upplifað á eigin skinni hvernig jóga getur hjálpað við að auka vellíðan, losna við kvilla og ekki síst róa hugann og minnka streitu. Fyrir utan jóga eru áhugamálin m.a. ferðalög og ævintýri innanlands og utan, gönguferðir, ilmkjarnaolíur, vatnslitamálun og kettlingar.

  • Sunna María Schram
    Sunna María Schram

    Meðgöngujóga

    Sunna María Schram, jógakennari í Jógasetrinu

    Sunna María Schram

    Meðgöngujóga

    Sunna er menntaður hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún hefur starfað á vökudeildinni, fæðingarvaktinni og í mæðravernd. Um árabil starfaði hún hjá Björkinni í fæðingum utan spítala. Í dag starfar hún á Fæðingavakt Landspítalans og er í sálgæslunámi. Hún sinnir þar að auki samtalsmeðferðum á Auðnast klíník þar sem hún vinnur með konum á barneignaraldri í úrvinnslu- og viðrunarviðtölum. Sunna hefur stundað jóga frá aldarmótum og lauk hún 200t jógakennaranámi frá Jóga shala, með áherslu á vinyasa flæði árið 2024. Sunna er skapandi orka í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, stóru og smáu, femínisti fram í fingurgóma með sterka réttlætiskennd. Uppskriftin að hamingjunni er samvera með börnunum, iðkun a jógamottunni, núvitund í náttúrunni með dassi af dansi, góðu kaffi og kæruleysi

  • Thelma Björk Jónsdóttir
    Thelma Björk Jónsdóttir

    Mjúkt Jóga og Jóga Nidra

    Thelma Björk Jónsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Thelma Björk Jónsdóttir

    Mjúkt Jóga og Jóga Nidra

    Thelma Björk Jónsdóttir er menntaður fatahönnuður, listgreinakennari, jóga- og hugleiðslukennari og með diplóma í jákvæðri sálfræði.

    Thelma Björk hefur undanfarin ár kennt textíl og jóga í Barnaskóla Reykjavíkur sem er Hjallastefnuskóli. Einnig hefur hún haldið úti hugleiðslum í Systrasamlaginu alla föstudaga síðan árið 2017. Thelma Björk lauk sínu fyrsta kennaranámi í kundalini jóga frá Jógasetrinu árið 2015. Hún hefur síðan bætt við sig kennaranámi í Yoga Nidra hjá Kamini Desai bæði grunn – og framhaldsnámi. Krakkjóga kennaranámi “Childplay “ hjá Gurudass og námskeiði í sálgæslu hjá Vigfúsi Bjarna Albertsyni í Endurmenntun háskólans.

    Thelma heillaðist fyrst af jóga þegar hún fór í sinn fyrsta meðgöngujógatíma hjá Auði Bjarnadóttir árið 2010 og þá var ekki aftur snúið. „Fyrir mér snýst jóga og hugleiðslan að miklu leyti um að hlaða mig og vökva. Að leggja inn á andlega bankann og vera mín besta vinkona“

    Thelma Björk er listakona í sífelldri leit í sinni listsköpun og vinnur út frá hugmyndum sínum um tengslin milli hugar og handa og hvernig hún getur skapað listaverk byggð á minningum. Þegar Thelma er ekki að kenna jóga og hugleiðslu situr hún við hattagerð og bróderar í gamla stóla og myndir.

    Thelma Björk kennir mjúkt jóga og jóga nidra

  • Vala Sólrún Gestsdóttir
    Vala Sólrún Gestsdóttir

    Mjúkt Jóga og tónheilun

    Vala Sólrún Gestsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Vala Sólrún Gestsdóttir

    Mjúkt Jóga og tónheilun

    Vala fléttar saman fallega upplifun og áhrifin eru djúpslökun sem vinnur gegn streitu og kvíða, losar um uppsafnaða spennu og áföll sem sest hafa að í líkamanum.
    Hljóðbylgur eins og önnur orka er hreyfing. Líkami og hugur nema hreyfinguna og verða fyrir orkunuddi að utan sem innan.

    Ávinningur er spennulosun, ró í taugakerfi, úrvinnsla, aukið orkuflæði, tenging.

    Bakgrunnur Völu liggur í Tónlist. Hún er Tónskáld, hljóðmaður, Tón- og Reiki heilari.

Scroll to Top