Kundalini jóga
Opnir tímar
- Opið kort, 10 tíma kort eða stakir tímar
- Frjáls mæting í Jógaflæði, Kundalini Jóga, Mjúkt Jóga, Yin Jóga og Jóga Nidra.
- Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
- Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.
Stundatafla haustönn 2026
Kennarar
Auður Bjarna, Estrid, Guðrún Theodóra, Kristín Rósa, María Margeirs og Rósa Matt
Kundalini jóga / Lífsorku jóga er markvisst jógakerfi með eflandi jóga og öndunaræfingum, hugleiðslu, möntrum og slökun. Unnið er að því að því að lyfta orkunni upp, bæta jafnvægi orkustöðva og víkka vitund okkar.
Með því að ástunda kundalini jóga styrkjum við taugakerfið, innkirtlakerfið og ónæmiskerfið og komum jafnvægi á líkama, huga og sál. Jóga þýðir sameining. Þegar við vekjum upp okkar eigin orku finnum við að streitan minnkar en viljastyrkur og lífsgleði eflast.
Kundalini jóga samanstendur af æfingum eða stöðum (asana), með ákveðinni öndun (pranayama), handa- og fingrastöðum (mudra), líkamslokum (bandha), tónun (mantra) og íhugun (meditation), saman eða í ákveðinni röð til að skapa ákveðin áhrif. Þessi vísindi hafa verið kennd í klaustrum á Indlandi og í Tíbet í þúsundir ára.
Kundalini jóga hentar bæði byrjendum og jógaiðkendum sem hafa reynslu af öðrum tegundum jóga.