Paranámskeið „Já elskan“

Á ca. 4-6 vikna fresti bjóðum við upp á paranámskeið þar sem makinn mætir með, eða sá sem aðstoðar í fæðingu. Farið er í öndun og ýmsan undirbúning fyrir fæðinguna, nudd, ásamt ýmsum góðum ráðum. Rannsóknir sýna að góður stuðningur maka í fæðingum hefur jákvæð áhrif á líðan konunnar og minna um inngrip í fæðingu.

Paranámskeið í Jógasetrinu

Næstu námskeið

Sunnudaginn 25. okt. kl. 16.00-19.00
Fyrir konur settar í nóvember og desember og maka eða aðstandanda
með Auði Bjarna Jógakennara og Soffíu Bæringsdóttur Doulu

Sunnudaginn 29. nóv. kl. 16.00-19.00
Fyrir konur settar í desember og janúar og maka eða aðstandanda
með Auði Bjarna Jógakennara og Elvu Rut ljósmóður í Björkinni

Verð: 9.900 kr. fyrir parið, fyrir þær sem eru í meðgöngujóga í Jógasetrinu.
16.900 kr. (ef ekki í meðgöngujóga í Jógasetrinu)

Kennarar

Auður Bjarnadóttir, Soffía Bæringsdóttir doula og Elva Rut ljósmóðir í Björkinni leiða námskeiðin.

Soffía er reyndasta doula landsins en starfar einnig sem fjölskyldufræðingur. Nánar um Soffíu: hondihond.is

Skráning

Vinsamlegast sendið okkur eftirfarandi upplýsingar á jogasetrid@jogasetrid.is:

  • Nafn maka / aðstandanda
  • Settur dagur
  • Láttu okkur vita að þú sért hjá okkur í Jóga

ATH! Paranámskeiðið er gríðarlega vinsælt og konur sem eru í meðgöngujóga í Jógasetrinu ganga fyrir.

Inga Rún Björnsdóttir

Jógakennaranámið í Jógasetrinu hefur verið yndislegt ferðalag inn á við. Námið gaf mér góðan skilning á jóga og jógakennslu, ásamt því að vera nærandi sjálfsrækt og tækifæri til að læra að tengja betur við eigin líkama, huga og hjarta. Í náminu eignaðist ég dýrmætar jógasystur og kynntist frábærum kennurum sem leiddu af mikilli hlýju. Ég mæli heils hugar með náminu fyrir alla sem vilja vaxa, bæði sem jógakennarar og manneskjur.

Georgiann

I looked around for the best Yoga Nidra training I could find and found this one. But even still, it exceeded my expectations.

Halla

Ég get varla lýst því hversu góður undirbúningur jógaiðkunin reyndist vera fyrir fæðinguna. Fæðingin var strembin og tók verulega á en þegar ég var nálægt því að gefast upp „poppuðu upp“ í kollinn hinar ýmsu möntrur sem héldu mér gangandi og hjálpuðu mér að klára verkið.

Inga Steinunn

Ljósmóðirin spurði mig líka hvort ég væri búin að vera í jóga, en hún sagðist sjá mikinn mun á því hvað jógakonur ná að slaka vel á miðað við hinar. Á einum tímapunkti skrapp maðurinn minn fram á kaffistofu og þar voru víst tvær ljósmæður að dásama það hvað stelpan á stofu 10 næði rosalega flottri slökun milli hríða! Það var sem sagt ég.

Guðrún D.

Það bjargaði meðgöngunni minni að koma í jóga og það kom mér á óvart hvað það hjálpaði mér brjálæðislega í fæðingunni. Ég leitaði í svo margar æfingar sem við gerðum og uppörvunarorðin og hvatninguna að „eiga“ sína fæðingu. Upplifunin af fæðingunni (sem var í raun ekkert sérlega auðveld) var MÖGNUÐ, mér fannst ég stjórna öllu og fannst þetta ekkert mál. TAKK!

Dalla Ólafsdóttir

Það sem stendur upp úr er hvernig Auður hefur tvinnað alla þessa þræði saman með hyggjuviti sínu, reynslu, innsæi og visku. Dregið saman og gert aðgengilegt. Leiðir með fordæmi sínu. Leyfir öðrum að njóta vegferðar hennar á þroskabrautinni og þeirra lærdóma sem hún dregur á leiðinni. Jógafræðin í verki. Kærleikurinn sem leiðarljósið. Það hefur staðið upp úr fyrir mig.

Alda Á.

Kærastinn minn var með mér í þessu öllu saman eins og síðast. Munurinn er sá að hann var viðstaddur þá en núna var hann þátttakandi í fæðingunni. Þetta var á einhvern undarlegan hátt bara alveg ótrúlega rómantísk, innileg og töfrandi stund sem við áttum svo 100% saman. Bara algjörlega ólýsanlega dýrmætt og ég vona innilega að þið eigið allar eftir að upplifa svona fæðingu eins og ég var svo heppin að gera.

Ingibjörg

Eftir fæðinguna líður mér svolítið eins og mér séu allir vegir færir, eins og ég hafi sigrað heiminn, eins og sjálfstraustið hafi hoppað upp um nokkur level! Svoleiðis óska ég öllum að líða eftir sína fæðingu, og það er ekki spurning, tímarnir í jóganu hjá Auði, OG SÉRSTAKLEGA PARAKVÖLDINU á ég allt að þakka. Gangi ykkur öllum vel!

Þórunn

Mér er það mjög ljúft að mæla eindregið með upplifun minni af að stunda jóga með 60+ hópnum sl. tvö ár og hálft ár. Sú upplifun hefur gefið mér afar mikið bæði andlega og líkamlega og satt að segja get ég varla hugsað mér að vera án þess í framtíðinni. Andrúmsloftið í Jógasetrinu er einstakt svo ekki sé talað um kennarana Auði og Maríu sem leggja sig allar fram um að láta okkur líða sem allra best svo við höfum sem mest gagn af æfingunum sem eru einstaklega vel út færðar. Slökunin í lok hvers tíma er sömuleiðis yndisleg svo ekki sé meira sagt!

Jóhanna G. Jóhannesdóttir, hönnuður í Kaupmannahöfn

Gurudass Kaur er algjör gleði- og orkubomba sem kann að láta fullorðna fólkið leika sér og gleyma líkamlegum aldri um stund. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði, þó ekki sé nema bara til að finna innri leikgleði hins innra barns.

Aldís

Heil og sæl Auður. Mér finnst ég eiga þér margt að þakka því fæðingin gekk svo vel í ljósi þess að ég ,,andaði mig í gegnum hana“ og ljósmæðurnar áttu ekki til aukatekið orð. Ég sagði þeim að sjálfsögðu frá því að þú hefðir kennt okkur stelpunum hvernig ætti að tækla þetta og að það ætti að hvetja allar barnshafandi konur til þess að fara í jóga til þín.

Auður Eva Ásberg

Jóga Nidra námið hjá Auði og Kamini Desai var dásamleg upplifun sem ég mun búa að og nýta mér alla ævi. Það var einstaklega dýrmætt að fá faglega og djúpa fræðslu um áhrif Yoga Nidra á taugakerfið, og hvernig hægt er að vinna markvisst með þetta öfluga verkfæri til heilunar og jafnvægis. Ég mæli heilshugar með þessu námi fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn og upplifa umbreytandi áhrif Yoga Nidra.

Scroll to Top