Meðgöngujóga
Meðgöngujóga allt árið
Meðgöngujóga hefur mótast af áratuga reynslu við að styðja við konur á þessum viðkvæma tíma. Það er yndisleg staðfesting á því starfi að Hildur Ármannsdóttir ljósmóðir gerði námskeiðum Auðar sérstök skil í lokaritgerð sinni við Háskóla Íslands, þar sem hún skoðaði hversu dýrmætur þessi undirbúningur er fyrir fæðinguna.
Stundaskrá
Kennarar
Auður Bjarnadóttir, Arna Rín Ólafsdóttir, Ástrós Erla Benediktsdóttir, Brynja Gunnarsdóttir, Elva Rut ljósmóðir og jógakennari, Guðrún Theódóra Hrafnsdóttir, Guðrún Ósk Maríasdóttir, Vera Snædal ljósmóðir og jógakennari, Sunna María Schram ljósmóðir og jógakennari.
Gott að vita
- Innifalið eru 3 tímar í meðgöngujóga á viku, ásamt aðgangi að opnum tímum í stundaskrá. Munið að bóka pláss fyrirfram, en opnað er fyrir bókanir með tveggja daga fyrirvara.
- Vinsamlegast afbókið tímanlega ef þið komist ekki, svo önnur kona komist að.
- Hafið með ykkur jógadýnu eða handklæði, en notaleg teppi og púðar eru á staðnum.
- Munið eftir vatnsbrúsanum
Meðgöngujóga er dásamlegur undirbúningur fyrir fæðinguna.
Til að veita þér innblástur höfum við tekið saman fallegt safn af fæðingarsögum frá konum sem hafa undirbúið sig hjá okkur.
Í tímunum leggjum við áherslu á öndun, teygjur, styrkjandi æfingar, hugleiðslu og slökun, þar sem djúp öndun er einn mikilvægasti undirbúningurinn fyrir góða fæðingu. Jógað stuðlar að betri tengingu við líkamann þar sem innsæi, öryggi og sjálfstraust eflast, og konan er hvött til að vera virk og skapandi í sinni fæðingu.
Á þeim rúmu 25 árum sem Jógasetrið hefur starfað hafa þúsundir kvenna staðfest að jóga er einn besti undirbúningur sem völ er á, enda hvetja flestar ljósmæður til þess. Í jóganu gefur konan meðgöngunni, sjálfri sér og barninu sínu algjöra og óskipta athygli.
Gott er að byrja í kringum 14.–16. viku, en það er líka hjartanlega velkomið að byrja síðar. Flestar konur mæta alveg fram að fæðingu, svo það er aldrei of seint að byrja á meðan við höfum pláss.
Í lok meðgöngu er lítið mál að bæta við stökum vikum. Ef þú hefur stundað jóga hjá okkur í 3 mánuði eða lengur ertu heiðursgestur okkar frá 40. viku og fram að fæðingu – í okkar boði.
Við tökum hjartanlega á móti þér og hlökkum til að hlúa að þér og barninu!
Verðskrá
Aldís
Heil og sæl Auður. Mér finnst ég eiga þér margt að þakka því fæðingin gekk svo vel í ljósi þess að ég ,,andaði mig í gegnum hana“ og ljósmæðurnar áttu ekki til aukatekið orð. Ég sagði þeim að sjálfsögðu frá því að þú hefðir kennt okkur stelpunum hvernig ætti að tækla þetta og að það ætti að hvetja allar barnshafandi konur til þess að fara í jóga til þín.
Ingibjörg
Eftir fæðinguna líður mér svolítið eins og mér séu allir vegir færir, eins og ég hafi sigrað heiminn, eins og sjálfstraustið hafi hoppað upp um nokkur level! Svoleiðis óska ég öllum að líða eftir sína fæðingu, og það er ekki spurning, tímarnir í jóganu hjá Auði, OG SÉRSTAKLEGA PARAKVÖLDINU á ég allt að þakka. Gangi ykkur öllum vel!
Inga Steinunn
Ljósmóðirin spurði mig líka hvort ég væri búin að vera í jóga, en hún sagðist sjá mikinn mun á því hvað jógakonur ná að slaka vel á miðað við hinar. Á einum tímapunkti skrapp maðurinn minn fram á kaffistofu og þar voru víst tvær ljósmæður að dásama það hvað stelpan á stofu 10 næði rosalega flottri slökun milli hríða! Það var sem sagt ég.
Alda K.
Það sem Auður og jógað náði að hjálpa mér með í sambandi við fæðinguna var það að ég var svo rosalega örugg þegar allt þetta ferli byrjaði, ég var ekkert hrædd við hríðarnar þó þær væru nær óbærilegar, ég náði líka að anda á milli þó það væri stutt og ég vissi allan tímann að þetta myndi taka enda. Ég var með miklu meira öruggi í fararteskinu en hin tvö skiptin. Þetta er þó sennilega mesta áskorun og erfiði sem kona getur gengið í gegnum. En að ná að koma einu stykki kraftaverki út án nokkurra verkjalyfja gerir hverja konu hrikalega stolta og eftir að hafa gert þetta tvisvar þá er ég þess fullviss um að við konur búum yfir einhverjum ótrúlegum krafti.
Sigrún H
Það er engin spurning að jógað er besti undirbúningur sem hægt er að hugsa sér fyrir fæðingu, þvílíkt sem ég notaði bæði öndunina og ekki síst hugarfarið. Ég var ekki hrædd í eina sekúndu og treysti líkamanum mínum 100% fyrir þessu verkefni. Ég hugsa til baka um fæðinguna með ánægju og hlýju, þetta var yndisleg reynsla og ekki hægt að hugsa sér betri verðlaun en litlu músina sem hrýtur við hliðina á mér núna í rúminu sem hún fæddist í. Takk Auður fyrir yndislega handleiðslu á meðgöngunni, ég mun bera út boðskapinn með leyndardóminn á bak við góðu fæðingu og halda áfram að senda barnshafandi konur í jóga til þín.
Eyrún
Jóga hjá Auði tvisvar í viku var ómissandi þáttur í lífi mínu. Oftar en ekki felldi ég tár í möntrunum og nær undantekningarlaust sofnaði ég í slökuninni og kom fyrir að ég vaknaði þegar Kundalini tíminn var að hefjast. Ég varð hugfangin af öllu sem flokkast undir andlegan undirbúning.
Alda Á.
Kærastinn minn var með mér í þessu öllu saman eins og síðast. Munurinn er sá að hann var viðstaddur þá en núna var hann þátttakandi í fæðingunni. Þetta var á einhvern undarlegan hátt bara alveg ótrúlega rómantísk, innileg og töfrandi stund sem við áttum svo 100% saman. Bara algjörlega ólýsanlega dýrmætt og ég vona innilega að þið eigið allar eftir að upplifa svona fæðingu eins og ég var svo heppin að gera.
Aldís
Nú er ég á lokametrunum á minni annarri meðgöngu. Ég kynntist meðgöngujóga hjá Auði á fyrstu meðgöngu og finnst mér tímarnir hjálpa mér gífurlega mikið bæði í því að skapa pláss fyrir mig en líka til að draga úr kvíða fyrir fæðingunni. Hreyfingin liðkar og kennir okkur að slaka, anda og treysta. Möntrur og öndun undirbúa huga og líkama fyrir ferðalagið sem meðganga og fæðing er. Kennararnir eru ólíkir en upplifi ég það á jákvæðan hátt, það er gott að fá ólíkt út úr tímunum. Stundum er meira púður sett í jógastellingar og stundum í spjall eða andlegu hliðina.
Bestu þakkir fyrir mig!
Guðrún Jó
Ég fann um leið og ég labbaði, inn dásamlegan anda hjá ykkur og fann fyrir fullt af fallegum englum sem svífa um hjá ykkur. Líkaminn minn og litla barnið mitt sagði mér að ég hefði bara gott af því að gefa mér þennan tíma tvisvar í viku. Þú talaðir um að hlusta á líkamann og mjaðmirnar mínar kölluðu á að þetta væri það rétta þar sem þær eru svo stirðar.
Halla
Ég get varla lýst því hversu góður undirbúningur jógaiðkunin reyndist vera fyrir fæðinguna. Fæðingin var strembin og tók verulega á en þegar ég var nálægt því að gefast upp „poppuðu upp“ í kollinn hinar ýmsu möntrur sem héldu mér gangandi og hjálpuðu mér að klára verkið.
Guðrún D.
Það bjargaði meðgöngunni minni að koma í jóga og það kom mér á óvart hvað það hjálpaði mér brjálæðislega í fæðingunni. Ég leitaði í svo margar æfingar sem við gerðum og uppörvunarorðin og hvatninguna að „eiga“ sína fæðingu. Upplifunin af fæðingunni (sem var í raun ekkert sérlega auðveld) var MÖGNUÐ, mér fannst ég stjórna öllu og fannst þetta ekkert mál. TAKK!