Jóganám 2026-2027
Kennaranám er fyrir alla, hvort sem er til að verða löggiltur kennari eða dýpka persónulega reynslu af jóga. Námið veitir góðan grunn fyrir árangursríka jógaástundun. Viðurkennt nám sem gefur tæki og tól og alhliða þjálfun þar sem kennd eru bæði jógafræði, jógatækni, líffstíll og fleira. Við mælum eindregið með að þeir sem velja námið stundi jóga markvisst fram að náminu.

„Að koma heim til þín“
Jóganám fyrir alla, hvort sem þú vilt verða jógakennari eða dýpka eigin ástundun. Námið er viðurkennt af Jógakennarafélagi Íslands og byggt á Hatha, Vinyasa, Kundalini og Amrit I Am Yoga.
- Hvenær: 4. september 2026 til 25. apríl 2027
- Hvar: 8 helgar í Reykjavík og 7 dagar á Sólheimum
- Verð: 590.000 kr.
- Staða: Uppbókað, biðlisti
Kennaranámið er dásamlegt jógaferðalag fyrir alla, hvort sem markmiðið er að verða löggiltur jógakennari eða dýpka eigin ástundun og persónulega reynslu.
Námið er byggt á Hatha, Vinyasa, Kundalini og Amrit I Am Yoga. Kennd eru jógafræði, jógatækni, lífsstíll og líffærafræði. Við mælum með að þátttakendur stundi jóga markvisst fram að námsbyrjun.
Kennt er á íslensku nema Kamini Desai kennir á ensku tvær helgar og Veerle Gueens eina helgi.
Innifalið í náminu
- Öll kennsla og 3 námsbækur
- 7 dagar á Sólheimum með gistingu og grænmetisfæði (tvær helgar)
- Haust- og vorkort í Jógasetrið að verðmæti 130.000 kr. (gildir 1. sept – 1. júní)
- Inngangur inn í Jóga Nidra kennaranám Jógasetursins að verðmæti 165.000 kr.
Reykjavík – 8 helgar
Föstudaga frá kl. 19:00-21:00
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 8:00-17:30
Sólheimar í Grímsnesi
2. – 4. október – Dýpra ferðalag inn á við
Föstudagur til sunnudags (3 heilir dagar)
22. – 25 apríl – Jóga Nidra „Immersion“ og útskrift
Fimmtudagur til sunnudags (4 heilir dagar)
Lotur og helgar
- 4. – 6. september: Jóga, öndun og slökun
- 2. – 4. október, Sólheimar: Dýpra ferðalag inn á við
- 6. – 8. nóvember: Jógafræði og heimspeki
- 4. – 6. desember: Líffærafræði (Anatómía) og fleira
- 8. – 10. janúar: Heilsa, næringarfræði, Ayurveda og fleira
- 5. – 7. febrúar: Dýpra inn í iðkun
- 5. – 7. mars: Jóga, möntrur og gyðjurnar
- Mars – Apríl: Æfingakennsla (nánari upplýsingar koma síðar)
- 22. – 25. apríl, Sólheimar: Jóga Nidra „Immersion“ og útskrift
Kennarar í náminu
Auður Bjarnadóttir: Aðalkennari í jóganáminu er Auður Bjarnadóttir sem hefur kennt jóga í yfir 20 ár og rekur Jógasetrið í Reykjavík. Auður hefur í gegnum árin kennt Hatha, Kundalini jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga, Mömmu og Krakkajóga, Kennaraanám, auk ýmissa námskeiða
Auður er jógaþerapisti og leggur áherslu á í allri sinni nálgun á töfrana sem liggja í því að koma heim inn í líkamann, heim til sjálfsins með alúð og sjálfskærleika að leiðarljósi. Að hver og einn finni sinn innri styrk og mýkt hjartans til að lifa í frelsi á eigin forsendum.
Auður elskar að kenna jóga en einnig að vera eilífur námsmaður í jóga og í lífinu. Hún nýtur þess að sameina að ferðast og skoða heiminn með kennslu í jóga, td. á Krít, Corfu, Amorgos og í Himalayafjöllunum.
Í náminu eru einnig frábærir gestakennarar
Kamini Desai: Leiðandi alþjóðlegur kennari í Jóga Nidra og jógaheimspeki með 25 ára reynslu. Kennir á ensku (2 helgar).
Kristín Sigurðardóttir: Slysa- og bráðalæknir og aðjunkt við HÍ. Halda mun fyrirlestra um seiglutog, streitu og heilsu.
Veerle Geuens: Sálfræðingur, jógakennari og „Womb“ þerapisti með yfir 15 ára reynslu. Kennir á ensku (1 helgi).
Kolbrún Björnsdóttir: Grasalæknir og eigandi Jurtaapóteksins. Fræðir um næringu, jurtir og starfsemi meltingarinnar.
Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir: Sjúkraþjálfari, nuddari og flotþerapisti. Kennir líffærafræði og anatómíu.
Kennsluefni
- Uppruni Jóga
- Jógískur lífsstíll (mataræði og daglegt líf/ lífsreglur)
- Jógísk heimspeki
- Orkustöðvar (chakras)
- Asana (Jógastöður)
- Möntrur
- Pranayama (öndunaræfingar)
- Bandha (lokur)
- Hugleiðsla
- Jóga Nidra (Djúp slökun)
- Sjálfsþekking / Sjálfsvinna
- Sálin: Fæðing
- Karma (lögmál orsaka og afleiðinga)
- Dharma (æðri tilgangur/okkar æðri leið)
- Karma jóga / Seva
- Vestræn líffærafræði og jógastöður
- Hlutverk og ábyrgð kennarans
Mælt er með að lesa
- Um hjartað liggur leið eftir Jack Kornfield
- Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle
- The Yoga Sutras of Patanjali eftir Sri Swami Satchidananda
- Way of Grace eftir Miröndu Macpherson
- Fear: Understanding and Accepting the Insecurities of Life eftir Osho
Nauðsynlegt er að þátttakendur uppfylli eftirfarandi kröfur:
- Mæting í allar lotur
- Dagleg dagbók, endurspeglun og þakklætisiðkun
- 25 sóttir jógatímar í Jógasetrið (eða sambærilegt á landsbyggðinni)
- Æfingakennsla
- Lokaritgerð (ca. 1.000–1.500 orð)
Viðurkenning og réttindi
- Námið er viðurkennt af Jógakennarafélagi Íslands og er stuðst við uppbyggingu og kröfur Yoga Alliance.
- Að námi loknu og uppfylltum útskriftarkröfum fá þátttakendur afhent viðurkennt kennaraskírteini ásamt inngangi inn í Jóga Nidra kennaranám Jógasetursins.
Hrefna Sigurjónsdóttir
Jógakennaranámið í Jógasetrinu var umbreytandi ferðalag fyrir mig og það besta við ferðalagið var að koma heim. Heim til mín í mitt sanna sjálf og læra að rækta sjálfið. Námið færði mér magnaða visku, vinkonur og verkfæri fyrir lífið. Ég er hjartanlega þakklát fyrir að hafa kynnst öllum þessum dýrmætu sálum og fyrir að hafa fengið að nema af stórkostlegum jógameisturum og kennurum. Að skrá mig í þetta nám er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Ef þú hefur verið að velta fyrir þér að fara í jógakennaranám og vilt kafa á dýptina, þá er Jógasetrið staðurinn og elsku Auður og hennar fólk ykkar leiðsögumenn.
Brynja
Jóganámið gaf mér miklu meira en ég átti von á. Andinn í hópnum var yndislegur og kennararnir frábærir. Námið færði mér ný verkfæri í verkfærakistuna og í dag er jógaiðkun orðin hluti af mér. Ég er full þakklæti.
Agnes Kristjónsdóttir
Þessi jógavegferð í náminu hefur verið hljóðlát en á sama tíma kraftmikil. Framfarirnar hafa ekki alltaf verið sýnilegar, en þær hafa gerst í andardrættinum sem enginn heyrir nema ég — í vitundinni sem vex skyndilega, í augnablikinu þegar ég vel nærveru fram yfir frammistöðu. Þegar ég þarf ekki að sýna og sanna neitt 💜 Mjúk heimkoma. Rými þar sem líkaminn hlustar og hugurinn beygir sig. Því öflugasta umbreytingin er sú sem ekki sést, heldur sú sem upplifist. Ég hef látið draum rætast og er breytt manneskja. Hjarta mitt hefur stækkað 💜 Þetta er búið að vera fallegt og umbreytandi ferðalag undir styrkri stjórn, reynslu og visku elsku Auðar Bjarnadóttur og gestakennara. Mæli svo hjartanlega með þessu jóganámi fyrir alla, hvort sem það er hugsað fyrir kennslu eða ekki, sannarlega eitt það besta sem ég hef gefið mér 💜🙏💜
Inga Rún Björnsdóttir
Jógakennaranámið í Jógasetrinu hefur verið yndislegt ferðalag inn á við. Námið gaf mér góðan skilning á jóga og jógakennslu, ásamt því að vera nærandi sjálfsrækt og tækifæri til að læra að tengja betur við eigin líkama, huga og hjarta. Í náminu eignaðist ég dýrmætar jógasystur og kynntist frábærum kennurum sem leiddu af mikilli hlýju. Ég mæli heils hugar með náminu fyrir alla sem vilja vaxa, bæði sem jógakennarar og manneskjur.
Edda Björgvins
Besta gjöfin sem ég hef gefið sjálfri mér er að skrá mig í jógakennaranám í Jógasetrinu 🙏🏻 Það færði mér innri ró, kærleika og innihaldsríkara líf í alla staði.
Gunnhildur
Auður Bjarnadóttir var aðalkennari námsins, hafði umsjón með öllu náminu og miðlaði af gríðarlegri þekkingu sinn á jógastöðum, öndun, möntrum og hugleiðslu til okkar. Hún opnaði fyrir mér nýja sýn á tilveruna, þar sem vitundin er ekki bundin við hið sjáanlega heldur nær yfir víddir sem eru bæði snertanlegar og ósnertanlegar. Hún kenndi mér að upplifa að ég sé hluti af heildinni „Ég er það og það er ég“. Þessi sýn á einingu og tengingu er eitt af því sem hefur haft áhrif á mig. Einnig lagði hún áherslu á að tengja saman kenningar og aðferðir ólíkra kennara, bæði úr náminu sjálfu svo og úr sinni eigin reynslu, sem gaf mér breiðari og dýpri skilning á jógaiðkuninni.
Dalla Ólafsdóttir
Það sem stendur upp úr er hvernig Auður hefur tvinnað alla þessa þræði saman með hyggjuviti sínu, reynslu, innsæi og visku. Dregið saman og gert aðgengilegt. Leiðir með fordæmi sínu. Leyfir öðrum að njóta vegferðar hennar á þroskabrautinni og þeirra lærdóma sem hún dregur á leiðinni. Jógafræðin í verki. Kærleikurinn sem leiðarljósið. Það hefur staðið upp úr fyrir mig.
Sigrún Heiða (Siddí)
Að fara í þetta jóganám er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið fyrir sjálfa mig. Fyrir mér var þetta miklu meira en bara jógastöður. Þetta var dásamlegur griðastaður og ferðalag inn á við. Námið kenndi mér að hægja á mér og finna innri ró í miðjum stormi hversdagsins. Ég geng út úr þessu sterkari, mun meiri þolinmæði, með aukinn sveigjanleika og verkfæri í höndum sem munu nýtast mér alla ævilangt. Eignaðist framtíðar vinkonur. Þetta breytti algjörlega því hvernig ég nálgast lífið og ég mæli heilshugar með þessu námi!
Matthildur
Ég get með gleði og stolti mælt með þessu umbreytandi námi. Fræðslan var skemmtileg og vel fram sett og í raun meiri og dýpri en ég átti von á. Það sem stendur uppúr hjá mér fyrir utan frábæra fræðslu og djúpa innri vinnu er að ég lærði að sýna sjálfri mér alvöru mildi og góðvild.