Um Jógasetrið

Jógasetrið er hlýr samastaður fyrir alla aldurshópa þar sem við hlúum að líkama, sál og andlegri vellíðan á þínum eigin forsendum.

Jóga þýðir sameining

Hjá okkur sameinast innri sköpunarkraftur alheimsorkunni og dýpkar tenginguna við eigin tilgang og óendanleika. Ástundunin vekur upp innri orku, eflir einbeitingu og viljastyrk, dregur úr streitu og kvíða og veitir dýrmætan frið og lífsgleði í daglega lífinu.

Auður Bjarnadóttir, eigandi og forstöðumaður Jógasetursins, kennir hér ásamt hópi frábærra kennara sem deila reynslu sinni af alúð og virðingu. Boðið er upp á fjölbreytt námskeið á borð við Kundalini jóga, Jóga Nidra, meðgöngujóga og mömmujóga. Það er alltaf hjartanlega velkomið að mæta í frían prufutíma til að upplifa andrúmsloftið hjá okkur.

Fyrir tíma er gott að mæta í kyrrð um 10 mínútum fyrr til að slaka á, leyfa spennu að losna og önduninni að dýpka. Best er að vera berfætt í þægilegum og lausum fötum og hafa ekki borðað stóra máltíð þremur til fjórum tímum áður. Tilvalið er að koma með eigin vatnsbrúsa og drekka vel af vatni á eftir, ásamt því að góð sturtuaðstaða er á staðnum.

Jóga er fyrir þig, nákvæmlega þar sem þú ert hverju sinni.

Starfsfólk Jógasetursins

  • Auður Bjarnadóttir
    Auður Bjarnadóttir

    Jógaflæði, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Jóga fyrir 60+, Kundalini jóga og Jóga Nidra

    Auður Bjarnadóttir, stofnandi og eigandi Jógasetursins.

    Auður Bjarnadóttir

    Jógaflæði, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Jóga fyrir 60+, Kundalini jóga og Jóga Nidra

    Auður Bjarnadóttir, hefur kennt jóga síðan 2000. Árið 1999 tók hún sitt fyrsta kennarapróf, hatha/ashtanga í “Mount Madonna” í Kaliforníu. Meðgöngujóganámið hófst í Seattle árið 2000, á Kripalu Center árið 2002 og hjá hinni víðfrægu Gurumukh ‘Khalsa Way’ árið 2005.

    Auður útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2005 í New Mexico. Hún er einnig með kennararéttindi í Yoga Nidra og Yoga Therapíu frá Amrit Institute í Florida. Árið 2012 tók hún Diploma sem Dáleiðslutæknir haustið 2012 frá The International School of Clinical Hypnosis. Auður hefur sérhæft sig í meðgöngujóga og fæðingarfræðum og tók Doulu námi hjá Hönd í Hönd 2011 og HypnoBirth námskeið. Árið 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni okkar og 2012 gaf hún út Krakkajóga DVD mynd ásamt “Erumenn”. Auður hefur kennt víða og haldið utan um ýmis námskeið í Jógasetrinu, ma. Kennarnám í Kundalini Jóga og fleiri fjölbreytt námskeið.

    Auður elskar að kenna en líka að læra og lítur á sig sem eilífan nemanda í jóga, og að lifa lífinu lifandi. Auður kennir Kundalini jóga, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Hatha jóga og Jóga Nidra, leiðir Kennaranám í Kundalini og fleira. Auður hefur einnig leitt jógaferðir á fjöllum og síðustu ár hefur hún einnig kennt íslenskum og erlendum hópum á Krít og Corfu á Grikklandi.

  • Arna Rín Ólafsdóttir
    Arna Rín Ólafsdóttir

    Jógaflæði, Mjúkt Jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga og Mömmujóga

    Arna Rín - Jógakennari í jógasetrinu

    Arna Rín Ólafsdóttir

    Jógaflæði, Mjúkt Jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga og Mömmujóga

    Arna Rín Ólafsdóttir lauk fyrsta kennaranámi sínu hjá Jógasetrinu árið 2013. Í framhaldi af því hefur hún lokið krakkajóga kennararéttindum, 500klst réttindum í hatha jóga, pranajóga og Jóga nidra. Hún hefur einnig lokið framhaldsréttindum í Jóga Nidra ásamt Jóga Nidra fyrir börn frá Amrit Yoga setri í Flórída þar sem hún bjó, iðkaði jóga og starfaði um hálf ár. Arna hefur lengi verið hluti af jógaseturs teyminu og hefur haldið utan um fjölda tíma og námskeiða. Arna er einnig menntaður heilsumarkþjálfi, hefur lokið fyrsta stigi í Reiki heilun og hefur djúpan áhuga á heildrænni heilsu.

    Arna kennir tíma sína með áherslu á að byggja sterkara traust til líkamans og læra að heiðra skilaboð hans með virðingu og kærleika. Hún býður þannig upp á rými fyrir iðkendur til þess að upplifa hve djúpt líkaminn er tilbúinn að fara í hvert sinn sem mætt er á dýnuna. Að fara inn í kærleikann í gegnum mýktina.

  • Ástrós Erla Benediktsdóttir
    Ástrós Erla Benediktsdóttir

    Meðgöngujóga

    Ástrós Erla, jógakennari í Jógasetrinu

    Ástrós Erla Benediktsdóttir

    Meðgöngujóga

    Ástrós Erla starfar sem jógakennari, heilari og félagsráðgjafi. Í jógakennslunni leggur hún mikla áherslu á að einstaklingar fái hin ýmis tól til að tengjast sjálfu sér betur í gegnum vinnu með huga, líkama og sál. Hún blandar saman ýmsum fræðum til að einstaklingar fái heildrænar leiðir að bættri líkamlegri og andlegri heilsu. Í tímunum blandar hún saman líkamlegum jógaæfingum, hugleiðslu, öndunaræfingum, æfingum fyrir orkulíkama, núvitund og sjálfstyrkingu.

  • Birgir Þorsteinn Jóakimsson
    Birgir Þorsteinn Jóakimsson

    Karlajóga

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson, jógakennari í Jógasetrinu

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson

    Karlajóga

    Birgir Þorsteinn Jóakimsson hefur haft áhuga á jógafræðunum frá því hann var unglingur. Hann lauk kennaranámi hjá Jóga stúdíói og Yogi Shanti Desai sumarið 1998. Birgir hefur kennt fólki á öllum aldri á hinum ýmsu stöðum frá árinu 1998 meðfram starfi sínu sem grafískur hönnuður. Hann er mikill áhugamaður um hlaup, hjólreiðar og nú síðast sjósund sem hann stundar af töluveðri ástríðu. Birgir trúir því að lykillinn að því að verða góður jógakennari sé að þykja alveg óendanlega vænt um þá sem hann er að kenna. Þá kemur allt hitt að sjálfu sér.

  • Brynja Gunnarsdóttir
    Brynja Gunnarsdóttir

    Meðgöngujóga, jóga nidra og kundalini jóga

    Brynja Gunnarsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Brynja Gunnarsdóttir

    Meðgöngujóga, jóga nidra og kundalini jóga

    Brynja Gunnarsdóttir hefur kennt í Jógasetrinu síðan 2013. Hún lauk jógakennaranámi í Kundalini jóga árið 2013 og Jóga Nidra árið 2015. Hún hefur sótt ýmis námskeið og viðburði tengda jóga, öndun, og hugleiðslu. Jóga er svo miklu meira en að mæta á dýnuna og gera æfingar, jóga er lífstíll og hugarfar sem tengir líkama, huga og sál.

  • Edda Björgvinsdóttir
    Edda Björgvinsdóttir

    Jóga fyrir 60+

    Edda Björgvinsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Edda Björgvinsdóttir

    Jóga fyrir 60+

    Edda Björgvins er leikkona og fyrirlesari með MA í menningarstjórnun, diplóma á MA stigi í Jákvæðri sálfræði og Sálgæslu frá Háskóla Íslands. Edda hefur nýverið lokið námi sem jógakennari frá Jógasetrinu og einnig lokið námi sem Jóga Nidra kennari.

    Hún hefur meðfram leiklistinni haldið fyrirlestra og námskeið þar sem í boði er m.a. tjáning, styrkleikaþjálfun, húmor og gleði, heilsuefling, hamingjuþjálfun, sjálfsstyrking og margt fleira. Edda hefur sérstakan áhuga á að læra meira .. og meira (meira í dag en í gær)

  • Edda Jónsdóttir
    Edda Jónsdóttir

    Mjúkt jóga og Jóga nidra

    Edda Jónsdóttir, jógakennari í Jógasetrinu

    Edda Jónsdóttir

    Mjúkt jóga og Jóga nidra

    Edda Jónsdóttir á að baki nám í Jóga Nidra, Kundalini Jóga og nú síðast Hatha Jóga byggt á nálgun Vandu Scaravelli. Nálgun sem leggur áherslu á jarðtengingu, hlustun og forvitni í allri iðkun.  Að auki hefur hún sótt fjölmörg námskeið tengd jóga og heilsu og menntunar á sviði flot- og vatnsmeðferðarvinnu sem hún starfar einnig við. Edda hefur sótt ýmis námskeið sem nýtast henni í þeirri vinnu t.a.m. jógaþerapíu, flotþerapíu og Acquatic Massage Therapy. Helstu áhugamál eru fjölbreytt hreyfing og útivera ásamt ótalmörgu sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu. Edda kennir Mjúkt jóga og Jóga nidra.

  • Elva Rut Helgadóttir
    Elva Rut Helgadóttir

    Ljósmóðir og jógakennari

    Elva Rut, jógakennari í Jógasetrinu

    Elva Rut Helgadóttir

    Ljósmóðir og jógakennari

    Elva Rut er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún hefur starfað sem ljósmóðir  í Hreiðrinu og á fæðingarvakt LSH  á árunum 2006-2018. Í maí 2017 hóf hún störf í Björkinni sem er ljósmæðrastýrð fæðingarstofa og sinnir þar konum í mæðravernd, fæðingu og heimaþjónustu.

    Elva fékk áhuga á jóga þegar hún var að sinna konum í fæðingu sem höfðu stundað jóga á meðgöngu og fannst áhugavert hvað jóga hjálpaði konum í fæðingunni. Elva útskrifaðist sem kundalini jógakennari árið 2015, meðgöngu jógakennari árið 2016 og jóga nidra kennari árið 2018.

    Elvu er mjög umhugað um að styðja við og fræða konur á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir fæðingu, og þá sér í lagi aðstyðja við val og óskir kvenna.Elvu er hugleikið að hvetja barnshafandi konur til að gefa sér tíma til að stunda jóga á meðgöngu, því það er falleg gjöf sem hin barnshafandi kona gefur sér, barninu sínu og fjölskyldu sinni.

Hreyfðu við orkunni og lífsorkan greiðir leiðina
Scroll to Top