Jóga Nidra kennaranám 2026

Jóga Nidra er öflug og ævaforn hugleiðsluaðferð sem á upptök sín í gömlum jógahandritum. Í þessari þjálfun með Kamini Desai lærir þú að iðka Jóga Nidra og leiða aðra í gegnum það, á átta heilum dögum á Sólheimum í Grímsnesi. Námið skiptist í tvær lotur, Immersion og Certification, og hentar bæði þeim sem vilja dýpka eigin iðkun og þeim sem vilja öðlast leiðbeinendaréttindi.

8 heilir dagar á Sólheimum

Kamini Desai kennir á ensku og íslenskt aðstoðarfólk er á staðnum. Fyrri lotan er opin öllum, en sú seinni er fyrir þá sem hafa lokið fyrri lotunni.

  • Immersion: 29. október til 1. nóvember 2026
  • Certification: 19. til 22. nóvember 2026
  • Hvar: Sólheimar í Grímsnesi
  • Verð: 165.000 kr. hvor lota

Auður Eva Ásberg

Jóga Nidra námið hjá Auði og Kamini Desai var dásamleg upplifun sem ég mun búa að og nýta mér alla ævi. Það var einstaklega dýrmætt að fá faglega og djúpa fræðslu um áhrif Yoga Nidra á taugakerfið, og hvernig hægt er að vinna markvisst með þetta öfluga verkfæri til heilunar og jafnvægis. Ég mæli heilshugar með þessu námi fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn og upplifa umbreytandi áhrif Yoga Nidra.

Karen

This course should be required for every human. I am forever a better person.

G. Tibson

This is the BEST training I have taken anywhere, ever.

Georgiann

I looked around for the best Yoga Nidra training I could find and found this one. But even still, it exceeded my expectations.

„Lífið er ekki verkefni til að leysa heldur leyndardómur til að uppgötva“ – Amrit Desai
Scroll to Top