Mjúkt / Yin jóga

Opnir tímar

  • Opið kort, 10 tíma kort eða stakir tímar
  • Frjáls mæting í Jógaflæði, Kundalini Jóga, Mjúkt Jóga, Yin Jóga og Jóga Nidra.
  • Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
  • Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.

Stundatafla haustönn 2026

Kennarar

Auður, Edda, María, Rósa Matt, Vala, Gunna, Thelma

Mjúkt jóga byggir á sama grunni og Jógaflæði en farið hægar og mýkra inn í allar stöður. 

Hatha er ein þekktasta tegund jóga á vesturlöndunum. HA þýðir sól og THA þýðir máni. Unnið er með að flæða mjúklega inn og úr jógastöðum (asana), öndun (pranayama) og slökun. Jafnvægi styrkist í innkirtlakerfinu, taugakerfinu, vöðvum og stoðkerfi, ónæmiskerfi og blóðrás. 

Þegar við hægjum á önduninni þá róast hugurinn og við styrkjum meðvitund um augnablikið hér og nú. Í hringrás öndunar skapast eins konar hugleiðsluástand í jógastöðunum, einbeiting og jafnvægi í líkama, tilfinningum og huga. Þannig opnar jóga glufu fyrir sálartengingu þar sem við skynjum okkur tengd og í einingu við allt.

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“
Scroll to Top