Persónuvernd og vafrakökur

Jógasetrið ehf., kt. 650106-2880, Skipholti 50c, 105 Reykjavík, rekur vefinn jogasetrid.is. Hér segir hvaða upplýsingum við söfnum, af hverju og hvernig þú getur haft áhrif á það. Spurningar má senda á jogasetrid@jogasetrid.is.

Upplýsingar sem við söfnum

Þegar þú kaupir Netjóga: nafn, netfang, heimilisfang, póstnúmer, bær og sími. Við notum þær til að afgreiða pöntunina, gefa þér aðgang að myndböndunum og senda kvittun. Bókhaldslög skylda okkur til að geyma upplýsingar um viðskipti í 7 ár.

Greiðslur: greitt er á öruggri greiðslusíðu Teya. Við fáum aldrei kortanúmerið þitt.

Fréttabréf: ef þú skráir þig á póstlistann geymum við netfangið þitt hjá Mailchimp. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með tengli neðst í hverju fréttabréfi.

Bókanir í tíma og námskeið: fara fram hjá Abler, sem hefur sína eigin persónuverndarstefnu.

Vafrakökur

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefurinn vistar í vafranum þínum. Sumar eru nauðsynlegar svo vefurinn virki. Aðrar notum við aðeins ef þú samþykkir.

Nauðsynlegar (alltaf virkar)

  • WooCommerce (wp_woocommerce_session_, woocommerce_cart_hash, woocommerce_items_in_cart): muna hvað er í körfunni.
  • WordPress (wordpress_logged_in_, wordpress_sec_): halda þér innskráðri/innskráðum á Mínum síðum.
  • jogasetrid_consent: man hvort þú samþykktir eða hafnaðir vafrakökum. Gildir í 6 mánuði.

Tölfræði (aðeins með samþykki)

  • Google Analytics (_ga, _ga_KMLLMCFKGM): segir okkur hve margir heimsækja vefinn, hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan gestir koma. Gildir í allt að 2 ár.

Markaðssetning (aðeins með samþykki)

  • Meta pixel (_fbp, _fbc): lætur okkur vita hvort auglýsingar á Facebook og Instagram skila árangri og gerir okkur kleift að sýna þér auglýsingar sem eiga við. Gildir í allt að 3 mánuði.

Að breyta vali

Smelltu á Vafrakökur til að opna gluggann aftur og breyta vali þínu. Þú getur líka eytt vafrakökum í stillingum vafrans.

Þjónustuaðilar

Við deilum upplýsingum aðeins með fyrirtækjum sem hjálpa okkur að reka vefinn: Hringiðan (hýsing), Teya (greiðslur), Bunny.net (myndbönd), Mailchimp (fréttabréf), Google (tölfræði) og Meta (auglýsingar). Sum þeirra geta geymt gögn utan EES, með þeim vörnum sem lög krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt (nema lög skyldi okkur til að geyma þær). Sendu okkur póst á jogasetrid@jogasetrid.is. Ef þú ert ósátt/ur við meðferð upplýsinga getur þú leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Síðast uppfært: 19.10.2026

Scroll to Top