Karlajóga

Opið kort

  • Opið kort, 10 tíma kort eða stakir tímar
  • Frjáls mæting í Jógaflæði, Kundalini Jóga, Mjúkt Jóga, Yin Jóga og Jóga Nidra.
  • Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
  • Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.

Stundatafla haustönn 2026

Kennari

Birgir Þ. Jóakimsson

Karlajóga fór á flug hjá Birgi haustið 2015 og í dag ríkir sterkur og góður kjarni í kringum iðkunina. Æ fleiri karlar nýta sér jóga til að efla líkamlega og andlega vellíðan

Algengasta athugasemdin sem jógakennarar heyra er: „Jóga er ekki fyrir mig, ég er svo rosalega stirður.“ Mörgum finnst líka að þeir þurfi að vera alveg sallarólegir til að mæta. Sú er alls ekki raunin. Stirðir og stressaðir einstaklingar hafa einna mest gagn af iðkuninni, enda snýst þetta um að byrja rólega og hlusta á líkamann.

Hvað er gert í tímunum?

Í hvers dags tíma er unnið með mjúkar teygjur, öndun, styrkingu og góða slökun í lokin.

Meðmæli iðkenda

Ég er ánægður með tímana hjá Bigga.  Ég hef sótt tíma hjá honum í 7 annir.  Ég hef sótt tímana vegna teygjuæfinga því ég er skrifstofukall og þyki frekar stirður. Þá reyni ég að fókusera á djúpa öndun með æfingum vegna vægs astma sem ég er með og hjálpa æfingar hans mikið við að “opna” lungun.  Ég er golfari og nota teygjuæfingar sem ég hef lært hjá Bigga  bæði áður og eins eftir golfhring. Sigurður  

Biggi bjargaði mér frá hnykkjaranum. Fór til  hnykkjara með ca. 6 vikna millibili í 30 ár. En er hættur því eftir að ég byrjaði í jóga hjá Bigga. Jón Þröstur  

„I am a man of infinity, in pursuit of my destiny”.

„I am a man of infinity, in pursuit of my destiny“
Scroll to Top