Jógaflæði / Hatha
Opnir tímar
- Opið kort, 10 tíma kort eða stakir tímar
- Frjáls mæting í Jógaflæði, Kundalini Jóga, Mjúkt Jóga, Yin Jóga og Jóga Nidra.
- Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
- Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.
- Velkomið að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
Stundatafla haustönn 2026
Kennarar
Auður, Edda, María, Rósa, Sólveig, Vala, Gunna, Thelma
Kröftugra Jógaflæði á mánud. og á miðvikudögum en mýkra á föstudögum.
Vinsamlegast mætið tímanlega til að skapa kyrrð í stundina frá upphafi.
Hatha er ein þekktasta tegund jóga á vesturlöndunum
HA þýðir sól og THA þýðir máni. Unnið er með að flæða mjúklega inn og úr jógastöðum (asana), öndun (pranayama) og slökun. Jafnvægi styrkist í innkirtlakerfinu, taugakerfinu, vöðvum og stoðkerfi, ónæmiskerfi og blóðrás. Grunn líkamsstöðurnar í hatha jóga eru 84 en til eru mismunandi útfærslur sem gerir Hatha jóga fjölbreytt og styrkleikastig mjög misjafnt.
Þegar við hægjum á önduninni þá róast hugurinn og við styrkjum meðvitund um augnablikið hér og nú. Í hringrás öndunar skapast eins konar hugleiðsluástand í jógastöðunum, einbeiting og jafnvægi í líkama, tilfinningum og huga. Þannig opnar jóga glufu fyrir sálartengingu þar sem við skynjum okkur tengd og í einingu við allt.
„Smile, breathe and go slowly“.
-Thich Nhat Hanh