Guðrún Theodóra er menntaður meðgöngu- og kundalini jógakennari. Jógaástundunin hófst í meðgöngujóga hjá Auði Bjarna árið 2008. Eftir það hófst iðkun í kundalini jóga sem lauk með útskrift sem kundalini jógakennari árið 2011 (Jógasetrið, KRI), meðgöngujógakennari árið 2014 (The Mother’s Journey, Carolyn Cowan og Satya Kaur) og jóga nidra leiðbeinandi árið 2022 (Amrit Yoga Institute).
Hún hefur sótt ótal námskeið til viðbótar tengd jóga og hugleiðslu eins og
– Beyond Addiction. Námskeið þróað af Sat Dharam Kaur ND og Jivan Joti Kaur PhD sem samþættir kenningar Dr. Gabor Maté og fleiri sérfræðinga á fíknisviði.
– Breath of Life (Ayurprana, Vasant Lad)
– 3 framhaldsnámskeið í Kundalini jóga (Mind & meditation, Authentic relationships og Lifecycles & Lifestyles).
– Innhverf Íhugun hjá Íslenska Íhugunarfélaginu.
– Gong spilun hjá Arnbjörgu Konráðs.
– SatNam Rasayan heilunartækni með Vivecku Pasquier.
– Krakkajóga hjá Gurudass Kaur.
Guðrún stundar nú framhaldsnám í ayurvedískri ráðgjöf og lýkur því í byrjun árs 2025.
Hún starfar einnig sem aðstoðarmaður í fíknimeðferð hjá SÁÁ þar sem hún fær einnig að deila hugleiðslu, jóga og Nidra slökun til skjólstæðinga.
Í kennslu leggur hún mikla áherslu á tengingu við andardráttinn til að styrkja líkamsvitundina og stýra huganum betur.
Þannig komumst við dýpra inn á við og vöxum rólega í bestu útgáfuna af okkur sjálfum.