Katrín Eyjólfsdóttir

Katrín er menntaður þroskaþjálfi og hefur starfað á því sviði í yfir 25 ár, meðal annars sem ráðgjafi við fjölskyldur fatlaðra og langveikra barna. Hún er einnig lærður sáttamiðlari.

Katrín hefur stundað jóga í mörg ár og hefur brennandi áhuga á því hvernig jóga og hugmyndafræði þess geta stutt við líkamlega og andlega vellíðan. Hún leggur áherslu á að skapa öruggt og nærandi rými þar sem hver og einn getur mætt sjálfum sér af mildi, dregið úr streitu og fundið aukið jafnvægi.

Hún útskrifaðist sem jógakennari frá Jógasetrinu árið 2023 og hefur lokið I AM Yoga Nidra® Immersion og Certification ásamt Yoga Nidra Advanced hjá Amrit Yoga Institute.

Katrín hefur einnig lokið grunn- og framhaldsnámskeiði í gong-tónheilun hjá Arnbjörgu Kristínu og námi í tónheilun með kristalsskálum hjá Saraswati OM.

Í Jógasetrinu kennir Katrín jógaflæði, mjúkt jóga og jóga nidra. Hún hefur einnig leitt námskeið með áherslu á jóga nidra og tónheilun, meðal annars fyrir mæður langveikra barna. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á meðvitund, nærveru og vellíðan, þar sem markmiðið er að þátttakendur fari út úr tímanum endurnærðir í líkama og huga.

Scroll to Top