Thelma Björk Jónsdóttir

Thelma Björk Jónsdóttir er menntaður fatahönnuður, listgreinakennari, jóga- og hugleiðslukennari og með diplóma í jákvæðri sálfræði.

Thelma Björk hefur undanfarin ár kennt textíl og jóga í Barnaskóla Reykjavíkur sem er Hjallastefnuskóli. Einnig hefur hún haldið úti hugleiðslum í Systrasamlaginu alla föstudaga síðan árið 2017. Thelma Björk lauk sínu fyrsta kennaranámi í kundalini jóga frá Jógasetrinu árið 2015. Hún hefur síðan bætt við sig kennaranámi í Yoga Nidra hjá Kamini Desai bæði grunn – og framhaldsnámi. Krakkjóga kennaranámi “Childplay “ hjá Gurudass og námskeiði í sálgæslu hjá Vigfúsi Bjarna Albertsyni í Endurmenntun háskólans.

Thelma heillaðist fyrst af jóga þegar hún fór í sinn fyrsta meðgöngujógatíma hjá Auði Bjarnadóttir árið 2010 og þá var ekki aftur snúið. „Fyrir mér snýst jóga og hugleiðslan að miklu leyti um að hlaða mig og vökva. Að leggja inn á andlega bankann og vera mín besta vinkona“

Thelma Björk er listakona í sífelldri leit í sinni listsköpun og vinnur út frá hugmyndum sínum um tengslin milli hugar og handa og hvernig hún getur skapað listaverk byggð á minningum. Þegar Thelma er ekki að kenna jóga og hugleiðslu situr hún við hattagerð og bróderar í gamla stóla og myndir.

Thelma Björk kennir mjúkt jóga og jóga nidra

Scroll to Top