Útgáfutónleikar og fjölskyldumöntrustund í Jógasetrinu

Sunnudagur 15. nóvember kl 14:00 – 15:15

Hæ öll sömul!

Ykkur er boðið á útgáfutónleika og fjölskyldumöntrustund í Jógasetrinu! ☺

Harpa Fönn gaf út sína fyrstu barnaplötu 1. ágúst s.l. og ætlar af því tilefni að halda útgáfutónleika og fjölskyldumöntrustund í Jógasetrinu, sunnudaginn 15. nóvember kl. 14.00.

🐥 Barnaplatan heitir Ungi og er með 13 nýjum og frumsömdum lögum – kátum leiðarstefum í bland við hugvekjur, kyrrðarvísur og möntrur

🙏 Þó lögin séu einkum samin fyrir ungabörn og allt upp í grunnskóla, þá eru lögin einnig fyrir alla fjölskylduna og uppalendur, þar sem öll geta sungið með.

🤗 Öll eru hjartanlega velkomin á tónleikana – börn, fjölskyldur, einstaklingar, og öll þau sem tengja við það að finna barnið innra með sér. Á tónleikunum verða fluttar frumsamdar möntrur og hugvekjur um Vonina og Kærleikann, auk þekktra mantra á borð við Om Mani Padme Hum, og fallega leiðarstefsins Eilífðarsól. Önnur lög og textar, sem eru á íslensku, endurspegla jafnframt hugrekki og tjáningu, endurtekningar og einfaldan en oft hreinskilin orðaforða barna á þessum aldri.

💚 Jógasetrið skipar stóran sess í hjarta Hörpu, en þar varði hún löngum stundum í meðgöngujóga, mömmujóga og bæði börnin hennar hafa sótt þar krakkajóga 🍃

Harpa er tveggja barna móðir og hefur verið í tónlist í mörg ár, en starfar einnig í sviðslistum og er lögfræðingur og jógakennari að mennt.

🧘‍♂ Harpa stofnaði og heldur úti verkefninu Yoga Vegferð ásamt eiginmanni sínum, Árna Kristjánssyni, sem jafnframt er yoga nidra kennari. Undir Yoga Vegferð gefa þau hjónin út leiddar hugleiðslur, kúrusögur, núvitundaræfingar, kyrrðarvísur og annað kyrrðarefni, til að færa jóga og hugleiðslu inn í almenna vegferð barna og ungmenna, sem og fullorðinna. Ungi er fyrsta platan sem kemur út undir formerkjum Yoga Vegferðar, en einnig er í vinnslu barnabók með QR kóða á vel valin lög plötunnar, sem Bókabeitan kemur til með að gefa út.

🪆 Ásamt Hörpu koma fram á tónleikunum listakonurnar, þær Dísa Hreiðarsdóttir og Íris Þórarins, sem einnig vinna í möntrum og andlegum hljóðheimi. Þær hafa fylgt Hörpu lengi í gegnum tónsmíðar, hljóðferðalög og tónflutning, einkum með hljómsveit þeirra Grúska Babúska.

🎵 Harpa notar menntun sína, nálgun og reynslu inn í tónsmíðarnar og textana á ungbarnaplötunni Ungi.

👶 Barnaplötuna Ungi samdi Harpa meðfram uppeldi barna hennar sem nú eru 6 og 8 ára, og eru því lögin samin og unnin yfir 6 ára tímabil. Þau eru ígrunduð blanda af hughreystandi leiðarstefum, möntrum, vögguvísum og lagastúfum – einföld og grípandi, róleg og nærgætin.

Við vonumst til að taka á móti ykkur sem flestum,
Harpa, Dísa, Íris og Auður

Miðaverð:

  • Fullorðinn:. 2000 kr. í gegnum abler Jógasetursins
    (Einn fullorðinn og frítt fyrir börn)
  • Börn: ókeypis
  • Fjölskyldur 4.000 kr. í gegnum abler Jógasetursins
    (Tveir fullorðnir og frítt fyrir börn)

Namaste 🙏

Um möntrur

Mantra er endurtekið hljóð eða orð sem skapar líkamlegan og orkulegan víbring, en þessi tíðni virkjar og opnar hálsstöðina (Vishuddha) — miðstöð tjáningar og raddar — sem auðveldar okkur að leysa úr stíflum og tala okkar eigin sannleik af öryggi og skýrleika.

Nánar um ungbarnaplötuna Unga

  • 🐥 Ungi barnaplata, kom út 1. ágúst 🎉
  • 👶13 ný og frumsamin barnalög, fyrir börn á aldrinum 0-8 ára.
  • 🎶 Möntrur, hugvekjur, ljóð, hvetjandi og kát lög og vögguvísur. Öll fjölskyldan getur sungið með. 🎤
  • Yoga Vegferð og Lakehouse gefur út.
  • Tónlist og textar = Harpa Fönn.
  • Hljóðfæraleikur og útsetningar = Harpa Fönn.
  • Upptökur, hljóðsetning og hljóðblöndun = Harpa Fönn – Stúdíó Vegferð og Upptekið hljóðver og Stefan Orn Gunnlaugsson – Stúdío Bambus.
  • Aukaraddir = Iris Hrund , Dísa Hreiðarsdóttir , barnakór Waldorfskólans, Ylfi og Vordís
  • Mastering = Sigurdór Guðmundsson
  • Tónlistarkápa = Ari Hlynur Guðmundsson Yates

KAUPA AÐGANG

Scroll to Top