“ Ég er opinn farvegur fyrir lífið “ – “ I am an open channel for life”
Ég var að verða 42 ára á árinu og bjó í Seattle, Usa. Átti 2 börn fyrir, Hlyn 12 ára, fæddur á Landsspítalanum og Inga Huld 10 ára fædd á Elliheimilinu á Hornafirði. Báðar góðar fæðingar en hjá Óla mínum var það “JÓGAFÆÐINGIN”.
Hafandi verið ballettdansari þá hafði ég fengið dóminn “óbyrja” rétt upp úr tvítugu. Ég var að dansa í Munchen og gleymi seint þýska lækninum sem sagði: “ Nein Frau Bjarnadóttir, leider keine Kinder”. Oft hefur mig langað að finna þennan lækni aftur og mæta með Kraftaverkin mín þrjú.
Rétt áður en Ólafur Bjarni kom undir hafði ég misst fóstur. Þetta var rétt mánuði áður og yfirleitt er manni ráðlagt að bíða lengur með að verða barnshafandi aftur. En þessi drengur hefur alltaf ákveðið sjálfur sína leið og sinn tíma og byrjaði í upphafi jafn ákveðinn og endranær. “ Ég kem þegar ég kem “
Ég man að þegar ég fór í fyrstu skoðunina mina í Seattle, fletti símaskránni og fann Birthcenter í hverfinu. Ég undraði mig á því hvað var mikið af ungum konum þarna á biðstofunni. Svo þegar læknirinn fór að tala við mig um fóstureyðingu áttaði ég mig á að ég var nú aldeilis ekki á réttum stað:
“ Sorry we only do abortions” sagði konan…….og ég flýtti mér út. Og staðurinn heitir Birthcenter!
Svo fann ég betri stað og frábærar ljósmæður á fæðingarsetri. Og svo tók meðgangan yfir. Ég hef alltaf þjáðst af mjög vondri ógleði á öllum mínum meðgöngum, er nánast rúmliggjandi í 2 mánuði, fékk td. B vitamin sprautur á Landsspítalanum og borðað nánast ekkert. Flökurt allan sólarhringinn en gat aldrei kastað upp. Ef það hughreystir einhverjar konur þá myndi ég frekar vilja fæða 10 börn heldur en að ganga í gegnum svona Ó gleði tímabil aftur. Þetta var ástand vanlíðunar í 2 mánuði, á meðan fæðingin er verkefni sem tekur nokkra tíma og sjaldan meira en sólarhring. Þegar ég náði heilsu þá leið mér aldrei betur. Þvílíkt þakklæti að komast fram úr á morgnana og geta borðað morgunmat. Það var Bliss! Svo er bara þetta að ganga með barn, að næra og vernda litla mannveru, bara engu líkt.
Ég var nýútskrifaður jógakennari og einmitt nýbúin búin að fá kennslu í Seattle þegar ógleðin tók völdin. Svo ég þurfti að afþakka það fína boð. Nánast rúmliggjandi í 2 mánuði. En þá heyrði ég af frábæru meðgöngu jóga og dreif mig í tíma þegar heilsan leyfði. Kennarinn var bæði jógakennari og hjúkrunarfæðingur og hafði miklu að miðla, talaði mikið um Hindberjalaufte og þar lærði ég auðvitað Haföndunina góðu. Það var mikið spjallað, áhersla á náttúrlegar fæðingar og ýmis ráð gefin. Sem sagt bæði jóga og fæðingarfræðsla í tímunum. Og ég fór að hlakka til. Að hlakka til að eiga meðvitaða fæðingu í mínum styrk. MÍNA FÆÐINGU, sem ég hafði eitthvað um að segja. Og að geta fagnað fæðingunni!
Og hver var svo munurinn að fá fæðingarfræðslu og áherslu á náttúrulega fæðingu. Hún skipti sköpum. Og aðallega þetta að ég hef eitthvað um mina fæðingu að segja og að styrkja trausið á mig og að líkamann minn kann að fæða barn. Að fæðing er náttúrulegt ferli, jafnvel ævintýri, en ekki sjúkdómur. Og ég hafði öndunina sem akkeri í gegnum allt.
Ég var svo áhugasöm um þetta allt og að eignast náttúrulega og skapandi fæðingu að ég bauð eldri börnunum að vera viðstödd, 12 ára og 10 ára. Sonurinn 12 ára var nú ekki alveg viss. Þá sýndi ég þeim systkinunum myndband af heimafæðingu og sonurinn sagði “Já, ég er til í að hoppa í pottinn og taka á móti. En pabbinn gerði það svo í fæðingunn. Þarna sáu þau að fæðng getur verið undurfalleg. Og spennandi. Og sögðu já!
Ég hafði lesið í góðri bók: You are a channel for life, þú ert farvegur lífsins. Mér fannst það svo stórt og lyfti fæðingunni eins og fyrir ofan sjálfa mig. Ef ég fann óttann læðast að þá sagði ég við sjálfa mig: “ Ég er farvegur fyrir lífið” Ég er opinn farvegur fyrir lífið. Og óttinn leið hjá. Hugurinn er svo öflugur og svo mikilvægt að finna eins mikið Já og maður getur í fæðingunni og hægt er. Já okei.
Ég fékk þó nánast eins og líkamlega heimþrá á Landsspítalann, heim til Íslands og heim til mömmu. En mamma kom alla leið frá Íslandi, var bæði viðstödd fæðinguna, útskriftartónleika mannsins míns og hélt upp á 70 ára afmælið sitt með okkur, allt í sömu vikunni. Það var gott að fá mömmu, hún nuddaði bakið svo vel og svo sinnti hún börnunum þangað til að allt fór að gerast. Frænka mín var mætt frá Florida og var á myndavélinni.
Ég fæddi á dásamlegu fæðingarheimili, gat valið um fallegar fæðingarstofur með stórum potti, kosy eins og fallegt heimili. Og frábærar ljósmæður.
FÆÐINGIN:
26.apríl var ég komin 42 vikur. Ljósurnar voru alveg rólegar. Ég var á leið í jógatíma um hádegi og fór að sýna frænku hvernig magavöðvarnir virkuðu með kúluna og pumpaði nokkrum sinnum maganum. “Já og svo er ég búin að nudda geirvörturnar í 2 vikur í sturtunni og ekkert gerist” Ég rétt snerti geirvörturnar og fékk samdrátt. Prófaði aftur, samdráttur aftur. Ha, prófaði í þriðja sinn, nuddaði aðeins og vatnið fór. Ekki mikið en þó þannig að ég fann það. Hafði ekki misst vatnið í fyrri fæðingum mér vitanlega!
Enginn jógatími! Það fyrsta sem ég gerði var að loka augunum, og anda rólega haföndun. Já þetta er að gerast. Mín fæðing og ég ætla að stjórna henni. Þá meina ég að treysta líkamanum, treysta mér, fólkinu mínu, ljósunum, ferlinu og aðstæðum. Ég man ekki hvort þetta var mínúta eða 15 mínútur en ég man að það var svo gott að staldra við og stilla mig innávið: MÍN FÆÐING.
Maðurinn minn var líka heima og allt fór af stað. Hann vildi bruna á fæðingarheimilið enda Seattle stór borg. En ég vildi fyrst ná í börnin í skólann og það var rétt ákvörðun. Eins gott að við vorum með 7 manna bíl, við fjögur og mamma og frænka.
Ég fór strax inn á við og andaði haföndun í þá 4 tíma sem fæðingin tók, frá því í sófanum heima og þar til hann fæddist. Ef ég fékk nudd á bakið var ég góð, algjör deyfing. Svo var gott að komast í pottinn. Vatnið er svo dásamlegt, mýkir líkamann og allar hreyfingar auðveldari.
Ég fann fyrir fólkinu mínu en einbeitingin inn á við skipti öllu máli. Þarna fann ég svo sterkt hvað athyglin inn í öndunina var mikilvæg, að vera með alla leið í lok fráöndunar, því þar er slökunin. Þar sem slökunin er þar er opnunin. Það er mikilvægasti staðurinn að vera 100% til staðar í líkamanum, að opna farveginn með önduninni, og einmitt í hápunkti hríðarinnar / bylgjunnar. No fight no flight. Ég fer ekki frá því , ég slaka inní það. Engin mótstaða. Ég opna farveginn! Ég er farvegur lífsins.
ANDA SLAKA TREYSTA OG OPNA
Ef ljósunni fannst ég spenna þá sagi hún LET IT BE…….oh hvað það var gott að heyra það. Og hún lét mig ganga um gólf aðeins meira en ég nennti. Þyngdaraflið!
Ég fæddi I pottinum. Rétt í lokin kom maðurinn minn oní pottinn og tók á móti syninum. Þegar hann renndi sér úr legvatninu í vatnið og upp á bringu þá leit ég upp og sá 12 ára stóra bróður með tárin í augunum að taka á móti litla bróður. Þvílíkt mögnuð upplifun að vera öll saman að taka á móti litla undrinu, litla kraftaverkinu.
Og eins og kennarinn góði hafði sagt: When a woman owns her birth she owns her life” Eða “Þegar konan eignast fæðinguna sína þá eignast hún styrkinn sinn. Já þetta var mín fæðing, svo sannarlega, okkar fæðing.
Þessi upplifun var svo sterk að ég vissi að ég yrði að deila til annarra kvenna. Og nú eru komin 20 ár. Þegar Óli Bjarni kom var hann eins og sólin og ég kallaði hann Óli Sól.
Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að fá að miðla og leiðbeina og að vera þátttakandi í meðgöngu og fæðingarferli þúsunda kvenna í gegnum árin. Ég sé það sannarlega sem blómið í mínu lífsstarfi. Elsku konur. Við fæðum Kraftaverk með Kraftaverk.
Takk Óli Bjarni, Takk Líf.
