FÆÐINGARSAGA Hörpu Rúnar

Fæðing Hörpu Rúnar – 22. Maí 2022

Á fimmtudagskvöldi, 19. Maí, gengin 39+2 daga, fann ég undarlegan verk, eða má varla kalla
það verk, kannski undiröldu frekar. Lágværan víbring eins og eitthvað væri að rymja innra með
mér. Mig grunaði að þetta boðaði gott og fór spennt að sofa. Morguninn eftir, föstudag, var allt
með kyrrum kjörum en mig grunaði samt að eitthvað væri í aðsigi. Smári, maðurinn minn fór að
vinna á bráðamóttöku geðsviðs, þar sem hann vann á þeim tíma, og mætti tímanlega fyrir
vaktina sem byrjaði kl. 12. En þegar ég kvaddi hann í dyrunum voru samdrættir með verkjum
aðeins farnir að láta á sér kræla. Ég hringdi í hann 10-20 mínútur yfir 12 og fór þá fljótt að lítast
illa á þetta eftir að hann fór. Í honum var mikið öryggi að finna. Ég segi honum því að hann verði
eiginlega bara að koma heim og vera hjá mér.

Eftir hádegið byrjaði ég spennt að setja mig í stellingar. Ég hafði verið í meðgöngujóga
hjá Auði frá u.þ.b. 16 viku og þó ég hafi verið mjög jarðbundinn, rökvís, skoðanasterkur og
tiltölulega nýr sálfræðingur á þessum tíma, vissi ég strax að þetta var einmitt það sem ég þurfti
til að undirbúa mig fyrir fæðingu. Stellingarnar voru því ýmist á jógadýnunni eða á boltanum með
„ong namo“ í hátölurunum, vel kjörnuð í haföndun. Hríðarnar eða öldurnar (mér hefur þó aldrei
líkað illa við orðið hríð og ímyndað mér formæður mínar vaða snjóskafla af miklum styrk) komu
hver á eftir annarri, með hægvaxandi styrk og drógust nær hvor annarri yfir næstu klukkustundir
(kannski ein á ca. fimm mínútna fresti og þurfti ég vel að anda og einbeita mér í gegnum þær).
Ég hugsaði brött fram á veginn að ég yrði mætt upp á Landspítala etv. um kvöldið og dóttirin
gæti komið í heiminn á þessum fallega degi 20. Maí. En bæði hef ég ætíð verið bjartsýn og með
eindæmum óþolinmóð týpa. Um kvöldmatarleytið fór svo styrkur hríðanna að detta niður og
takturinn að lengjast. Þetta voru töluverð vonbrigði og ekki samkvæmt mínu bjartsýna „plani“.
Smári stakk upp á því að hvíla aðeins bjargráðin (þarna var ég búin að hugleiða í haföndun í
u.þ.b. sex klukkustundir) og fá okkur að borða. Við pöntuðum Dominos pizzu og horfðum aðeins
á the Office. Með þessu fjarlægist fæðingarleiðslan ansi hratt sem ég hafði verið í en eftir á að
hyggja var þetta mjög góð hugmynd þar sem ég hafði óvart ekkert borðað allan daginn.
Nema hvað, hríðarnar duttu aldrei alveg niður og komu á u.þ.b. 10-15 mínútna fresti allt
kvöldið og alla nóttina. Og af þannig styrk að það var útilokað fyrir mig að sofna, þrátt fyrir
margar tilraunir. Ég sendi Smára í háttinn um eitt leytið þegar ég sá fram á að geta ekki sofnað á
næstunni, því það væri vitleysa að hafa okkur bæði ósofin. Þessi nótt er orðin ansi þokukennd í
minni mínu í dag (sem betur fer). Þarna reyndi á minn andlega styrk og þrautsegju meira en
nokkru sinni fyrr. Á einhvern hátt náði ég að vera í leiðslu meirihluta nætur og anda mig í
gegnum hríðarnar. Það voru ekki hríðarnar eða verkurinn sem reyndi á heldur lengdin og óbreytt
staða. Þetta var orðið langhlaup og ég þurfti að endurstilla alla bjartsýni og væntingar, finna
æðruleysi og gefa eftir. Ég vakti Smára svo um hálf sjö og á þeim tímapunkti var ég algjörlega
uppgefin. Ég hringdi á kvennadeildina og útskýrði stöðuna og ljósmóðir hvetur mig til þess að
koma í skoðun og meta aðeins stöðuna og næstu skref. Hugmyndin um „næstu skref“ og
valkosti létti heilmikið á mér. Ljósmóðirin tjáði mér varfærnislega að ég væri með 4-5 í útvíkkun
(minnir mig, gæti verið ofmat svona fjórum árum seinna) eins og það væru sorgarfréttir eftir
mína þrautagöngu en það voru sko gleðifréttir í mín eyru. Öll einbeitingin og úthaldið hafði ekki
verið til einskis! Fimm af tíu hljómaði ekki svo illa. En ég var hins vegar uppgefin og þráði svefn
og hvíld. Þegar ljósmóðirin stakk því uppá einhvers konar „stopp töflum“ fyrir hríðarnar og
svefnlyfjum þáði ég það með þökkum, fór heim og sofnaði fljótt værum svefni.

Ég var svo vakin af hressilegum hríðarverk eftir hádegi á laugardeginum, eftir 5-6 klst
svefn. Svefninn gaf mér mikla orku og lagðist dagurinn vel í mig. Væntingar voru lágstemmdar
og óljósar og tók ég því hverri hríð fagnandi. Kraftaverkurinn sem færði mig nær barninu mínu.
Nú gekk allt eins og daginn áður, takturinn jókst rólega en örugglega og styrkur hríðanna einnig.
Um kl. níu um kvöldið mættum við upp á fæðingarvakt eftir símtal þar sem við vorum boðin
velkomin. Þá voru hríðarnar orðnar þannig sterkar að erfitt var að anda sig í gegnum þær (hlutir
mega vera erfiðir, þá er afrekstilfinning einnig meiri, meira um það síðar). Stofur með baði voru
uppteknar en fengum að vita að slík myndi losna eftir fáeina klukkutíma. Á þessum tímapunkti
hafði ég gefið eftir og tók öllu sem kom með ró og því lítið mál að fá ekki að fara í baðið strax. Í
staðinn kynntist ég glaðloftinu sem varð svo mikil björg fyrir mig og passaði svona einstaklega
vel með hafönduninni. Með rólegri haföndun í glaðloftspípuna fékk ég aldrei of mikið af loftinu,
varð ekkert óglatt eða fannst það neitt yfirþyrmandi eins og ég hafði heyrt að gæti gerst. Mér leið
vel á stofunni og við, par sálfræðinga, spjölluðum um heima og geima á milli hriða frameftir
kvöldi (samtöl og heitur bakstur var einnig óvænt verkja bjargráð fyrir mig).

Hjartsláttur stúlkunnar var orðinn hraðari þegar hún var skoðuð með hjartariti og mælt
með því við mig að sprengja belginn til að hraða á. Ég tók vel í það og gusaðist þá ljósgrænt
legvatn. Eftir það hertu hríðarnar enn ferðina og áfram kom haföndunin mér í gegnum þær af ró
og æðruleysi. Okkur var svo boðið að fara í stofu með baði eftir miðnætti og ég hélt fyrst um
sinn að um grín væri að ræða; að ég ætti að fara að rölta um ganginn á þessum tímapunkti. En
grín var það ekki og þegar ljósmóðirin sagði að ég hefði gott af labbinu kviknaði á peru hjá mér,
auðvitað var það gott, þetta vissi ég. Þarna hef ég ábyggilega verið að nálgast fulla útvíkkun og
stig umsköpunar (mín þýðing á enska orðinu transition) að nálgast. Ég komst í baðið og þótti
notalegt fyrst um sinn. Á þessum tímapunkti komst ég í fæðingartrans ef svo má segja og sökk
algjörlega í minn eigin heim. Eftir 1-2 klst í baðinu var ég orðin hálf dösuð og vildi uppúr.
Þegar ljósmóðir spurði mig hvort ég fyndi rembingsþörf, gerði ég það alls ekki. Ég reyndi
að fiska eftir einhverju og fann þá í fyrsta og eina skiptið fyrir óöryggi í fæðingunni. Nú kviknaði
sú hugmynd að eitthvað ætti að vera að gerast, sem var bara ekki. Ljósmóðirin spurði mig hvort
ég vildi prófa að rembast rólega og sjá hvernig mér fyndist og það varð til þess að auka meir á
óöryggið. Ég kunni þetta allt í einu ekki, ég kunni haföndunina og hríðarnar þekkti ég, en þetta
þekkti ég ekki. Leið og beið og ég reyndi að finna taktinn að rembast með hríðunum og hægt og
rólega, nú eins og flest annað í þessari blessuðu fæðingu, kom rembingurinn. Ég rembdist svo í
rúmar tvær klukkustundir. Án þess að átta mig á því hafði ég nær ekkert borðað frá Dominos
pizzunni á föstudags kvöldinu og held ég að það hafi spilað inn í orkuleysi í rembingnum (í
komandi fæðingu verður næring á þriðju vakt Smára). Þarna fór ég aðeins að missa móðinn og
ljósmæðurnar reyndu að hvetja mig með því að finna kollinn sem var byrjaður að láta sjá sig.
Lítið gerðist í nokkrum næstu rembingum og þá fór ég að biðja um einhverja aðstoð en hafði svo
sem enga hugmynd um hver hún gæti verið. Þá kom önnur ljósa og bauð mér að láta klippa
mig. Flott! Frábær hugmynd! Hvað sem er, sagði ég. Það var gert sársaukalaust, eða a.m.k. tók
ég ekki eftir sársauka, hvílíkt aukaatriði, en ég öðlaðist þarna trú á því að þetta væri það sem
þyrfti til. Í næsta rembing kom höfuðið og stúlkan mín öll skaust til mín. Það augnablik, að finna
hana renna út, er það mikilfenglegasta sem ég hef nokkru sinni upplifað. Bæði sálrænt en einnig
líkamlega, hvílík sturta af alsælu og gleði helltist yfir mig. Ég tárast við að skrifa þessi orð. Hún
var komin.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það hvernig mér leið næstu andartök, þar sem ég veit að sú
upplifun er mjög ólík meðal mæðra og ég vil ekki búa til væntingar eða hugmyndir hjá ykkur sem
eruð að fara að fæða fyrsta barn. En ég get sagt það að langhlaupið, úthaldið og þrautseigjan
sem ég þurfti að sýna og bjó greinilega yfir, magnaði einnig þessa stórkostlegu sigurtilfinningu.
Ég hef aldrei upplifað neitt jafn valdeflandi og að fæða hana Hörpu mína.

Scroll to Top