Aðalheiður Jensen, leikskólakennari og Rope Yoga kennari

Ég ákvað að skella mér á krakkajóganámskeiðið fyrir ári síðan og sé sko ekki eftir því. Ég er leikskólakennari og yogakennari og hef haft mikinn áhuga á því að tengja þetta tvennt saman og sá þarna tækifæri til þess. Á þessu námskeiði öðlaðist ég bæði þekkingu á því hvernig hægt er að nálgast yoga með börnum og ekki síður fannst mér þetta góð reynsla fyrir mig persónulega. Ég upplifði ákveðið frelsi frá samanburði og dómum, fann hvernig ég braust enn lengra úr skelinni og naut þess að vera ég. Þá fannst mér ég enn betur undir það búin að breiða þennan boðskap út til barnanna og leyfa þeim að njóta! Gurudass smitar alla með sinni tæru lífsgleði og er frábær kennari!

Scroll to Top