Lærðu að hugleiða / Úr streitu í kyrrð

4 vikna námskeið – 6. – 27. október
Þriðjudagar kl. 18.45-20.00

Einnig innifalið í opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur.

Hugleiðsla er magnað tól til að þjálfa hugann og auka andlegt jafnvægi. Hún er líka öflug til þess að minnka streitu, kvíða og þunglyndi og jafnframt að hjálpa okkur að komast í betri tengsl við líkamann. Allir geta lært að hugleiða en mörgum reynist erfitt að komast upp á lagið með ástundunina, enda er hugleiðsla oft krefjandi, sérstaklega ef hugur okkar er ör eða mikið er í gangi í lífi okkar.

Á þessu 4 vikna námskeiði lærum við nokkrar mismunandi aðferðir til að hugleiða með því markmiði að allir geti fundið aðferð sem henti þeim og haldið ástundun áfram. Þá verður einnig farið í jóga, öndun og góð ráð til að minnka streituna í daglega lífinu.

Nálgunin er hlý og persónuleg þar sem kennarinn, Hildur Kristín hefur sjálf notað þessar aðferðir til að ná heilsu aftur eftir kulnun.

Hildur Kristín er lærður jógakennari frá Jógasetrinu og hefur starfað sem tónlistarkona í mörg ár samhliða því að kenna sköpun og lagasmíðar. Hún stofnaði einnig fræðsluvettvanginn “Anda inn” á netinu þar sem hún kennir hugleiðslu, öndun og streitustjórnun. Hún kennir þar aðferðir sem hjálpuðu henni sjálfri að komast gegnum kulnun, langvarandi streitu og kvíða á náttúrulegan hátt.

  1. – 27. október – 4 vikna námskeið
    Einnig er innifalið í opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur.
    Þriðjudagar kl. 18.45-20.00

Almennt verð: 22.000 kr
Skráning:
20% afsláttur fyrir núverandi korthafa hjá Jógasetrinu sem greiða 17.600 kr.

Staðsetning: Jógasetrið, Skipholti 50c

KAUPA AÐGANG

Scroll to Top