Fjórar vikur á þriðjudögum frá 3. – 24. nóvember kl. 18.45 -20.15
Á námskeiðinu leiðir Rósa í heilandi jógaferðalag og fræðslu
Lögð er áhersla á:
• Hægar og meðvitaðar jógaæfingar (Asana)
• Öndun (Pranayama)
• Hugleiðslu
• Jóga Nidra djúpslökun
Þetta færð þú:
• Fjögur 75 mín námskeiðskvöld með Rósu í Jógasetrinu.
• Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.
• Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið.
• Tvær Jóga Nidra hljóðupptökur til eignar sem þú getur notað að vild.
• Opið kort í Jógasetrinu meðan á námskeiði stendur.
Heilandi jóga er gott bjargráð við streitu og álagi og jafnvel afleiðingum áfalla. Nálgunin er mild og markviss sem styður við taugakerfið, eykur öryggiskennd og tengsl við líkamann, hjálpar líkama og huga að finna jafnvægi og innri ró og styður við náttúrulega hæfni líkamans til að heila sig.
Heilandi jóga hentar öllum sem vilja næra sig og hlúa mjúklega að líkama og huga og þá sem:
Glíma við langvarandi streitu eða kulnun
Upplifa kvíða eða spennu í líkamanum
Vilja styrkja tengsl við sjálfan sig á mildan hátt
Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg.
4 vikna námskeið, á þriðjudagskvöldum kl. 18.45 -20.15
3. nóv. 10. nóv. 17. nóv. og 24. nóv.
Verð: 27.000 kr.
Korthafar í Jógasetrinu fá 20% afslátt og greiða 21.600 kr
