Paranámskeið „Já elskan“
Á ca. 4-6 vikna fresti bjóðum við upp á paranámskeið þar sem makinn mætir með, eða sá sem aðstoðar í fæðingu. Farið er í öndun og ýmsan undirbúning fyrir fæðinguna, nudd, ásamt ýmsum góðum ráðum. Rannsóknir sýna að góður stuðningur maka í fæðingum hefur jákvæð áhrif á líðan konunnar og minna um inngrip í fæðingu.

Næstu námskeið
Sunnudaginn 25. okt. kl. 16.00-19.00
Fyrir konur settar í nóvember og desember og maka eða aðstandanda
með Auði Bjarna Jógakennara og Soffíu Bæringsdóttur Doulu
Sunnudaginn 29. nóv. kl. 16.00-19.00
Fyrir konur settar í desember og janúar og maka eða aðstandanda
með Auði Bjarna Jógakennara og Elvu Rut ljósmóður í Björkinni
Verð: 9.900 kr. fyrir parið, fyrir þær sem eru í meðgöngujóga í Jógasetrinu.
16.900 kr. (ef ekki í meðgöngujóga í Jógasetrinu)
Kennarar
Auður Bjarnadóttir, Soffía Bæringsdóttir doula og Elva Rut ljósmóðir í Björkinni leiða námskeiðin.
Soffía er reyndasta doula landsins en starfar einnig sem fjölskyldufræðingur. Nánar um Soffíu: hondihond.is
Skráning
Vinsamlegast sendið okkur eftirfarandi upplýsingar á jogasetrid@jogasetrid.is:
- Nafn maka / aðstandanda
- Settur dagur
- Láttu okkur vita að þú sért hjá okkur í Jóga
ATH! Paranámskeiðið er gríðarlega vinsælt og konur sem eru í meðgöngujóga í Jógasetrinu ganga fyrir.
Edda Björgvins
Besta gjöfin sem ég hef gefið sjálfri mér er að skrá mig í jógakennaranám í Jógasetrinu 🙏🏻 Það færði mér innri ró, kærleika og innihaldsríkara líf í alla staði.
Alda Á.
Kærastinn minn var með mér í þessu öllu saman eins og síðast. Munurinn er sá að hann var viðstaddur þá en núna var hann þátttakandi í fæðingunni. Þetta var á einhvern undarlegan hátt bara alveg ótrúlega rómantísk, innileg og töfrandi stund sem við áttum svo 100% saman. Bara algjörlega ólýsanlega dýrmætt og ég vona innilega að þið eigið allar eftir að upplifa svona fæðingu eins og ég var svo heppin að gera.
G. Tibson
This is the BEST training I have taken anywhere, ever.
Hrefna Sigurjónsdóttir
Jógakennaranámið í Jógasetrinu var umbreytandi ferðalag fyrir mig og það besta við ferðalagið var að koma heim. Heim til mín í mitt sanna sjálf og læra að rækta sjálfið. Námið færði mér magnaða visku, vinkonur og verkfæri fyrir lífið. Ég er hjartanlega þakklát fyrir að hafa kynnst öllum þessum dýrmætu sálum og fyrir að hafa fengið að nema af stórkostlegum jógameisturum og kennurum. Að skrá mig í þetta nám er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Ef þú hefur verið að velta fyrir þér að fara í jógakennaranám og vilt kafa á dýptina, þá er Jógasetrið staðurinn og elsku Auður og hennar fólk ykkar leiðsögumenn.
Jónína
Ég er 79 ára gömul og hef í gegnum tíðina verið að glíma við þrálátan gigtarsjúkdóm. Ég hef stundað jóga árum saman, því ég vil halda verkjalyfjum í lágmarki. Tímarnir hjá Jogasetrinu eru í topp klassa og reynst mér ómetanlegir, bæði fyrir líkama og sál og er þakklát fyrir að geta sótt þá áfram.
Alda K.
Það sem Auður og jógað náði að hjálpa mér með í sambandi við fæðinguna var það að ég var svo rosalega örugg þegar allt þetta ferli byrjaði, ég var ekkert hrædd við hríðarnar þó þær væru nær óbærilegar, ég náði líka að anda á milli þó það væri stutt og ég vissi allan tímann að þetta myndi taka enda. Ég var með miklu meira öruggi í fararteskinu en hin tvö skiptin. Þetta er þó sennilega mesta áskorun og erfiði sem kona getur gengið í gegnum. En að ná að koma einu stykki kraftaverki út án nokkurra verkjalyfja gerir hverja konu hrikalega stolta og eftir að hafa gert þetta tvisvar þá er ég þess fullviss um að við konur búum yfir einhverjum ótrúlegum krafti.
Matthildur
Ég get með gleði og stolti mælt með þessu umbreytandi námi. Fræðslan var skemmtileg og vel fram sett og í raun meiri og dýpri en ég átti von á. Það sem stendur uppúr hjá mér fyrir utan frábæra fræðslu og djúpa innri vinnu er að ég lærði að sýna sjálfri mér alvöru mildi og góðvild.
Georgiann
I looked around for the best Yoga Nidra training I could find and found this one. But even still, it exceeded my expectations.
Auður Eva Ásberg
Jóga Nidra námið hjá Auði og Kamini Desai var dásamleg upplifun sem ég mun búa að og nýta mér alla ævi. Það var einstaklega dýrmætt að fá faglega og djúpa fræðslu um áhrif Yoga Nidra á taugakerfið, og hvernig hægt er að vinna markvisst með þetta öfluga verkfæri til heilunar og jafnvægis. Ég mæli heilshugar með þessu námi fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn og upplifa umbreytandi áhrif Yoga Nidra.
Aldís
Heil og sæl Auður. Mér finnst ég eiga þér margt að þakka því fæðingin gekk svo vel í ljósi þess að ég ,,andaði mig í gegnum hana“ og ljósmæðurnar áttu ekki til aukatekið orð. Ég sagði þeim að sjálfsögðu frá því að þú hefðir kennt okkur stelpunum hvernig ætti að tækla þetta og að það ætti að hvetja allar barnshafandi konur til þess að fara í jóga til þín.
Inga Rún Björnsdóttir
Jógakennaranámið í Jógasetrinu hefur verið yndislegt ferðalag inn á við. Námið gaf mér góðan skilning á jóga og jógakennslu, ásamt því að vera nærandi sjálfsrækt og tækifæri til að læra að tengja betur við eigin líkama, huga og hjarta. Í náminu eignaðist ég dýrmætar jógasystur og kynntist frábærum kennurum sem leiddu af mikilli hlýju. Ég mæli heils hugar með náminu fyrir alla sem vilja vaxa, bæði sem jógakennarar og manneskjur.
Guðrún Jó
Ég fann um leið og ég labbaði, inn dásamlegan anda hjá ykkur og fann fyrir fullt af fallegum englum sem svífa um hjá ykkur. Líkaminn minn og litla barnið mitt sagði mér að ég hefði bara gott af því að gefa mér þennan tíma tvisvar í viku. Þú talaðir um að hlusta á líkamann og mjaðmirnar mínar kölluðu á að þetta væri það rétta þar sem þær eru svo stirðar.