Námskeiðið er 3 þriðjudaga – 8., 15. og 22. des kl. 19:00-20:15
Viltu stíga út úr amstri desembermánaðar og gefa þér nærandi stund fyrir slökun, endurheimt og kyrrð?
Á þessu námskeiði færðu tækifæri til að hægja á þér, öðlast djúpa slökun og róa taugakerfið. Með blöndu af Jóga Nidra, tónheilun og öndunaræfingum skapast notalegt og öruggt rými þar sem þú getur sleppt takinu á streitu, endurnært orkuna og fundið meira jafnvægi á aðventunni.
About the course
Yoga Nidra, oft kallað jógískur svefn, er djúp slökunarhugleiðsla þar sem þú liggur þægilega á dýnu og ert leidd/ur inn í ástand milli vöku og svefns. Þessi aðferð getur hjálpað til við að draga úr streitu, bæta svefn, róa hugann og efla almenna vellíðan.
✨ Gong tónheilun leiðir þig inn í djúpa slökun þar sem hljóðbylgjur og titringur styðja við ró, spennulosun og endurnæringu taugakerfisins.
✨ Kristálsskálatónheilun umlykur þig tærum og hreinum tónum sem styðja við innri kyrrð, jafnvægi og vellíðan.
✨ Breathing exercises hjálpa þér að hægja á, mýkja hugann og skapa meira rými fyrir frið, nærveru og jafnvægi.
Þessar aðferðir vinna saman að því að skapa heildræna upplifun sem getur hjálpað þér að mæta desembermánuðinum af meiri ró, skýrleika og mildi gagnvart sjálfri/sjálfum þér.
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum, hvort sem þú hefur reynslu af jóga og hugleiðslu eða ert að stíga þín fyrstu skref. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.
Hvað færðu út úr námskeiðinu?
- Djúpa slökun og endurnæringu
• Verkfæri til að takast á við streitu og álag í daglegu lífi
• Betri svefn og meiri hvíld
• Aukna líkamsvitund og innri ró
• Tækifæri til að endurhlaða orkuna á annasamasta tíma ársins
• Dýrmæta stund fyrir sjálfa(n) þig í notalegu og nærandi umhverfi
Helstu upplýsingar
📍 Jógasetrið, Skipholti 50C, Reykjavík
🕯 Kennt verður á þriðjudögum kl. 19:00-20:15
📅 Dagsetningar: Námskeiðið er 3 þriðjudaga – 8., 15. og 22. des 2026
💰 Verð: Almennt 15.000 kr og 20% afsláttur fyrir iðkendur sem greiða 12.000 kr
👩🏫 Kennari: Katrín Eyjólfsdóttir
Um kennarann
Katrín er menntaður þroskaþjálfi og hefur starfað við það síðastliðin 26 ár. Hún hefur starfað sem ráðgjafi við fjölskyldur fatlaðra og langveikra barna. Hún er einnig lærður sáttamiðlari.
Katrín hefur stundað jóga í mörg ár og hefur brennandi áhuga á því hvernig hægt er að nýta jóga og hugmyndafræði þess í daglegu lífi til að mæta þörfum hvers og eins til að öðlast sátt og minnka streitu í daglegu lífi.
Hún útskrifaðist sem jógakennari úr jógakennaranáminu hjá Auði í Jógasetrinu árið 2023 og hefur lokið I AM Yoga Nidra® Immersion og Certification og Jóga Nidra Advanced frá Amrityoga institute.
Hún hefur einnig lokið grunn- og framhaldsnámskeiði í gong tónheilun hjá Arnbjörgu Kristínu og tónheilun með kristálsskálum hjá Saraswati OM. Katrín hefur kennt námskeið í Jógasetrinu með áherslu á jóga nidra og tónheilun, m.a. fyrir mæður langveikra barn
„Gefðu þér gjöf í desember. Ekki enn eitt verkefnið á listanum heldur stund af kyrrð, hvíld og endurnæringu. Desemberkyrrð er hlýlegt ferðalag inn á við þar sem þú færð tækifæri til að hægja á þér, anda og hlúa að sjálfri/sjálfum þér á dimmustu og jafnframt fallegustu vikum ársins.“
