Hlýjar kveðjur, Björk og Daníel

Ég og unnusti minn fórum á paranámskeið í gær og ég vildi bara þakka kærlega fyrir okkur ☺️ Þetta var dásamleg reynsla og við vorum svo ánægð eftir tímann. Við fórum í langan göngutúr eftir námskeiðið og töluðum um hvað þetta námskeið var góður undirbúningur fyrir fæðinguna. Við eigum von á okkar fyrsta barni og við vorum bæði mjög kvíðin fyrir fæðingunni (enda höfum við aldrei gert þetta áður) en eftir að hafa hlustað á Auði  tala svona fallega um fæðinguna og barneignir þá erum við bara orðin spennt! 
Bara enn og aftur, takk kærlega fyrir þetta yndislega námskeið, við þurftum svo sannarlega á þessu að halda ☺️

Scroll to Top