NÁMSKEIÐ
Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.
Einnig velkomið að mæta í aðra opna tíma í stundaskrá.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
Kennsla hefst aftur 2. janúar 2025
Mánu- og fimmtudagar | kl. 20.15 – 21.15 |
Vorönn, 65.000 kr, einn mánuður 17.000 kr
2. janúar – 31. maí.
Kennsla hjá Bigga er til 19. desember. Velkomnir í opna tíma í stundaskrá til 31. desember.
Einnig velkomið að mæta í aðra opna tíma
KENNARI
Birgir Þ. Jóakimsson
Mjúkar teygjur, öndun, styrking og slökun í lok tímans.
Karlajóga fór á flug með Birgi haustið 2015 og nú er kominn sterkur kjarni í karlajóga. Jóga er komið til að vera og æ fleiri karlar þiggja þessi frábæru fræði og jógaiðkun til líkamlegrar og andlegrar vellíðunar!
Ein algengasta athugasemdin sem jógakennarar fá þegar þeir fara að dásama jógaiðkun er: „Jóga er nú ekki málið fyrir mig, ég er nefnilega svo rosalega stirður“. Einnig halda sumir að stressaðir einstaklingar eigi ekkert erindi í jóga, jógaiðkun sé aðeins fyrir sallarólega einstaklinga sem eru með allt sitt á hreinu. Sú er auðvitað alls ekki raunin. Stirðir og stressaðir einstaklingar eru einmitt þeir sem hafa einna mest gagn af því að stunda jóga. Málið er bara að byrja rólega og hlusta vel á líkamann.
„I am a man of infinity, in pursuit of my destiny”.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.