NÁMSKEIÐ
„Þegar ég kem úr jóga, þá á ég bara allan heiminn“ – Magga 88 ára
NÆSTU NÁMSKEIÐ:
7. janúar – 27. febrúar 2025 (8 vikur) UPPBÓKAÐ
Verð: 24.000 kr
Þriðju- og fimmtudagar | kl. 14.00 – 15.00 |
20. janúar – 26. febrúar 2025 (6 vikur) SKRÁNING Í GANGI
Verð: 19.000 kr
Mánu- og miðvikudagar | kl. 13.30 – 14.30 |
Einnig velkomið að koma í aðra tíma í stundaskrá.
Möguleiki að hafa með þér eigin dýnu, púða, teppi eða fá lánað á staðnum. Vinsamlega hafðu með þér vatnsbrúsa.
KENNARAR
Auður Bjarnadóttir, María Margeirsdóttir, Edda Björgvins og Rósa Matt
Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!
Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.
Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
„Við verðum ekki eldri með árunum, en nýrri með hverjum deginum”
„Ég hef verið í jóga áður, nokkrum sinnum, en aldrei haft eins gaman og mikið gagn eins og af þessu námskeiði. Öll umgjörð persónuleg og hlýleg, bæði kennslan og öll samskipti við starfsfólk. Það hentar mér fullkomlega.“