Jóganám ágúst 2024 – maí 2025
„Að koma heim til þín“
– UPPBÓKAÐ –
Lífið er ekki verkefni til að leysa heldur leyndardómur til að uppgötva”
– Amrit Desai
Kennaranám er fyrir alla, hvort sem er til að verða löggiltur kennari eða dýpka persónulega reynslu af jóga. Námið veitir góðan grunn fyrir árangursríka jógaástundun. Viðurkennt nám sem gefur tæki og tól og alhliða þjálfun þar sem kennd eru bæði jógafræði, jógatækni, líffstíll og fleira. Við mælum eindregið með að þeir sem velja námið stundi jóga markvisst fram að náminu.
Um námið
Næsta jógakennaranám með Auði Bjarnadóttur og fleiri góðum kennurum hefst haustið 2025. Áhugasamir geta sent póst á jogasetrid@jogasetrid.is til að skrá sig á biðlistann.
Námið er byggt á Hatha / Vinyasa / Kundalini og Amrit I Am Yoga.
Þetta dásamlega jógaferðalag er fyrir alla, hvort sem er til að verða jógakennari eða til að dýpka eigin ástundun. Námið er viðurkennt af Jógakennarafélagi Íslands og er stuðst við uppbyggingu og kröfur Yoga Alliance.
„AÐ KOMA HEIM TIL ÞÍN“
KENNARAR Í NÁMINU
Í þessu jóganámi leggjum við áherslu á að iðkandinn öðlist djúpa þekkingu á eigin líkama og dýpki innri hlustun. Þannig erum við enn betur í stakk búin að miðla til annarra.
Í Jóganáminu lærum við um ýmsar nálganir hinna aldagömlu jógaiðkana sem enn er stuðst við um hina víðu veröld. Við lærum jógastöður, öndunaræfingar, hugleiðslur, jóga nidra og jógíska heimsspeki. Sú þekking og grunnur veitir okkur öryggi til þess að gera jóga að okkar eigin nærandi persónulegri iðkun.
Jafnvægi finnst í því að hlusta á þarfir líkamans sem eru síbreytilegar frá degi til dags. Við færum athyglina frá huganum yfir í líkamann og æfum okkur í að leyfa honum að leiða ferðalagið. Þannig þjálfum við með okkur öryggi að stíga út úr fyrirfram gefnum ramma yfir í að hlusta á innri vitund líkamans og treysta.
JÓGA NIDRA helgin (4 dagar) verður lokahelgin á Sólheimum í apríl 2024 með Kamini Desai sem hefur leitt Jóga Nidra námið í Jógasetrinu til fjölda ára. Jógakennaranámið veitir einnig inngang inn í Jóga Nidra kennaranámið hjá Jógasetrinu og er apríl lotan því “ Immersion “ ( fyrri hluti nidra námsins – almennt námskeið 150.000kr.)
Kennt er á íslensku nema Kamini Desai kennir á ensku í des. og apríl en við aðstoðum við þýðingu ef þarf.
Kennsla á Sólheimum í Grímsnesi
4. – 6. október
Föstudag – sunnudags ( 3 heilir dagar )
1. – 4. maí
Fimmtudag – sunnudags ( 4 heilir dagar )
Kennsla í Reykjavík – 8 helgar
föstudagar 19.00 – 21.00
laugardaga og sunnudaga kl 8.00 – 17.30
Birt með fyrirvara um breytingar.
We are the mirror, as well as the face in it,
We are tasting the taste, this minute of eternity,
We are the pain, and what cures the pain, both,
We are the cold sweet water, and the jar that pours.
AUÐUR BJARNADÓTTIR
Aðalkennari í jóganáminu er Auður Bjarnadóttir sem hefur kennt jóga í yfir 20 ár og rekur Jógasetrið í Reykjavík. Auður hefur í gegnum árin kennt Hatha, Kundalini jóga, Jóga Nidra, Meðgöngujóga, Mömmu og Krakkajóga, Kennaraanám, auk ýmissa námskeiða. Auður er jógaþerapisti og leggur áherslu á í allri sinni nálgun á töfrana sem liggja í því að koma heim inn í líkamann, heim til sjálfsins með alúð og sjálfskærleika að leiðarljósi. Að hver og einn finni sinn innri styrk og mýkt hjartans til að lifa í frelsi á eigin forsendum.
Auður elskar að kenna jóga en einnig að vera eilífur námsmaður í jóga og í lífinu. Hún nýtur þess að sameina að ferðast og skoða heiminn með kennslu í jóga, td. á Krít, Corfu, Amorgos og í Himalayafjöllunum.
Í náminu eru einnig frábærir gestakennarar:
KAMINI DESAI
Kamini Desai mun kenna Jóga heimspekina og Jóga nidra fræðin. Hún hefur kennt í 25 ár víða um heim og er leiðandi í alþjóðasamfélaginu í Jóga nidra fræðunum. Það er mikill heiður að fá Kamini með okkur í kennaranámið.Kamini hefur einstakan hæfileika að miðla flóknum jógafræðum og gera þau aðgengilega og spennandi.
Nánar hér um Kamini: https://www.kaminidesai.com/biography
KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR
Kristín mun halda fjóra frábæra fyrirlestra um seiglutog, streitu og heilsu. Kristín er slysa- og bráðalæknir en hefur alla tíð sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu, Hún er aðjunkt við Læknadeild HÍ og síðastliðin fjögur ár hefur hún starfað hjá ÞR í heilsurannsókn ÍE. Nánar hér um Kristínu: https://www.facebook.com/aheildinalitid
VEERLE GEUENS
Veerle er sálfræðingur og “Womb” therapisti. Hún er jógakennari, syngur möntrur og elskar Bhakti Yoga, og er með yfir 15 ára reynslu í jógakennslu og námskeiðum “retreat” víða um heiminn. Eins mikið og jógísk og tíbetsk heimspeki auðguðu leið hennar að jóganu, þá fór Veerle að sakna þess sem er svo mikilvægt í jóganu, þess kvenlega, leið jógínunnar og einstakrar orku hennar! Veerle leyfði innsæi sínu og móðurlífi að vera hennar innri leiðarvísir og bað hana að finna nýja kvenlegri leið. Leið sem leiðir konur aftur heim í sína valdeflingu, innsæi og kraft. Undanfarin ár hefur Veerle dýpkað leið gyðjanna, kvenkyns listir, “Womb” therapíu og er mjög ástríðufull um að styrkja konur og endurheimta tengslin við móður jörð.
Nánar hér um Veerle: About — Yoga with Veerle
KOLBRÚN BJÖRNSDÓTTIR
Kolbrún er grasalæknir og eigandi Jurtaapóteksins. Hún hefur starfað við grasalækningar í 22 ár eða frá því að hún útskrifaðist úr grasalæknaskólanum í Bretlandi árið 1993. Á þessum tíma hefur Kolbrún með sína miklu reynslu hjálpað þúsundum manna með ráðleggingum sínum um mataræði og jurtir. Þar sem góð melting er undirstaða góðrar heilsu og vellíðunar, kennir hún hvernig hægt er að koma starfsemi hennar í lag til frambúðar.
Nánar hér um Kolbrúnu: Jurtaapotek
RAKEL DÖGG SIGURGEIRSDÓTTIR
Rakel Dögg sjúkraþjálfari mun kenna líffærafræði, anatómíu. Hún hefur brennandi áhuga á líkamanum og virkni hans, er nuddari og flotþerapisti. Rakel er starfandi sjúkraþjálfari en tók einnig jógakennaranámið hjá Ástu í Amarayoga.
Kennsluefni
- Uppruni Jóga
- Jógískur lífsstíll (mataræði og daglegt líf/ lífsreglur)
- Jógísk heimspeki
- Orkustöðvar (chakras)
- Asana (Jógastöður)
- Möntrur
- Pranayama (öndunaræfingar)
- Bandha (lokur)
- Hugleiðsla
- Jóga Nidra (Djúp slökun)
- Sjálfsþekking / Sjálfsvinna
- Sálin: Fæðing
- Karma (lögmál orsaka og afleiðinga)
- Dharma (æðri tilgangur/okkar æðri leið)
- Karma jóga / Seva
- Vestræn líffærafræði og jógastöður
- Hlutverk og ábyrgð kennarans
- Mælt er með að lesa: Um hjartað liggur leið eftir Jack Kornfield, Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle The Yoga Sutras of Patanjali eftir Sri Swami Satchidananda, Way of Grace byeftir Miranda Macpherson og Fear: Understanding and Accepting the Insecurities of Life eftir Osho.
.
DAGSETNINGAR
30. ágúst – 1. september – Jóga, öndun, slökun
4. – 6. október – Dýpra ferðalag inná við – SÓLHEIMAR
8. – 10. nóvember – Jógafræði og heimspeki
6. – 8. desember – Líffærafræði (Anatómía) og fl.
10. – 12. janúar – Heilsa, næringarfræði, Ayurveda og fl.
14. – 16. febrúar – Jóga, möntrur og gyðjurnar
21. – 23. mars – Dýpra inn í iðkun, möntrur og hugleiðslu.
29. – 30. mars. 5. – 6., 12. – 13. og 26. – 27. apríl – Æfingakennsla (mæting 1 helgi hver nemandi)
1. – 4. maí – Jóga Nidra “Immersion“ – SÓLHEIMAR
Birt með fyrirvara um breytingar.
Kamini Desai
ÚTSKRIFT
- Mæting í allar lotur.
- Dagleg skrif: dagbók/endurspeglun + þakklætisiðkun
- Sóttir jógatímar í jógasetrið: 25 skipti ( eða samvarandi á landsbyggðinni )
- Æfingarkennsla með öðrum nemanda í náminu: 5 skipti
- Æfingakennsla með utanaðkomandi nemanda: 5 skipti
- Æfingakennsla með hópnum: 2 skipti
- Ritgerð í lok námssins: ca 1000 – 1500 orð
Fyrir nánari upplýsingar og umsóknareyðublað hafðu samband við: jogasetrid@jogasetrid.is Sími: 7781000
VERÐ
550.000 kr. Ef staðgreitt er fyrir 1. ágúst er verðið 530.000 kr.
50.000 kr. staðfestingargjald greiðist við skráningu.
(Staðfestingargjald er óafturkræft en er innifalið í heildarverði)
Hægt er að dreifa greiðslum. Engar endurgreiðslur eru eftir að nám er hafið.
Fyrir nánari upplýsingar hafðu samband við jogasetrid@jogasetrid.is Sími 778 1000.
INNIFALIÐ
Öll kennsla og 3 námsbækur.
7 dagar á Sólheimum með gistingu og grænmetisfæði.
NÝTT! Haust- og vorkort í Jógasetrið, gildir frá 1. sept – 1. júní (verðmæti 108.000 kr.).