Jóga, slökun og sæla – með Auði Bjarnadóttur á Krít
24. ágúst í 11 nætur
“Er þinn tími kominn” ?
11 nátta jógaferð til hinnar grísku eyju Krítar með Auði Bjarnadóttur sem rekur Jógasetrið í Reykjavík. Eyjan er afar heillandi staður fyrir slíka ferð, enda er hún þekkt fyrir náttúrfegurð og kyrrð. Því gefst okkur tækifæri á að rækta líkama og sál í sólríku veðri og fallegu umhverfi. Í ferðinni verða í boði mismunandi jógatímar með Auði og lögð er áhersla á getu hvers og eins og eru byrjendur jafnt sem lengra komnir því að sjálfsögðu velkomnir! Tilvalið sólarfrí um leið og þú hlúir vel að þér á sál og líkama!
Nánar um ferðina hér: https://buff.ly/3NmCUme