Grunnnámskeið í Jóga með Rósu – NÁMSKEIÐI AFLÝST
17. september – 12.október – 4 vikur
Þriðjudaga kl. 18.45 -20.00
Einnig er innifalið að koma í opna tíma í stundaskrá á meðan á námskeiðinu stendur.
Farið er í undirstöðuatriði í jóga. Kenndar eru jógastöður, öndunaræfingar, hugleiðsla og Jóga nidra (djúpslökun). Einnig lausnir og æfingar gegn streitu og hvernig má finna jafnvægi í daglegur lífi.
Kennari: Kristín Rósa Ármannsdóttir
Rósa eins og hún er kölluð, er jógakennari / jóga þerapisti og er með kennararéttindi í jóga-Nidra og í Hatha jóga frá Amrit Yoga Institute. Rósa er einnig með kennararéttindi í Vinyaasa jóga frá Radiantly Alive á Bali. Hún er Kundalini kennari og hefur einnig sótt framhalds námskeið í jóga-Nidra, kundalini jóga og jógaþearpíu.
Í meistararitgerð sinni í Lýðheilsuvísindum skrifaði hún um streitu og streitustjórnun. Hún hefur lokið námi í streitustjórnun og seigluþjálfun (SMART-Stress Management and Rescilience Training) frá Benson Henry Institute
Verð: 24.000kr.
SKRÁNING: Https://www.abler.io/shop/jogasetrid/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjE0NTQ=
20% afsláttur fyrir iðkendur Jógasetursins (ef ert iðkandi, sendu okkur póst: jogasetrid@jogasetrid.is ).
„Hreyfðu við orkunni og lífsorkan greiðir leiðina“