GONG slökun á fullu tungli
Föstudaginn 15. nóvember kl 19:00-20:00
Gong hugleiðsla er tónheilun. Það er kraftmikið lækningartæki fyrir taugakerfið, líkama og sál. Gongið hjálpar okkur að hreinsa undirmeðvitundina og losa um stanslausar hugsanir.
Hljóðin sem gongið framkallar eru hljóð sköpunar, taka þig ýmist upp í himinhvolfið eða djúpt inn í nærandi slökun. Gong slökun er mögnuð leið að “sleppa takinu” og falla frjálst í djúpa innri kyrrð.
Sagt er að á fullu tungli getum við orðið tilfinninganæmari og fundið fyrir aukinni viðkvæmni. Því er gott að hlúa vel að sér í kringum fullt tungl og leyfa sér að horfa dýpra inn á við og skynja allar tilfinningar meðvitað.
Í slökuninni lætur þú fara vel um þig og mögulega munu tónar gongsins opna þér leið inn í nýja vídd innra með þér. Og jafnvel aðgang að stað sem er dýpra innra með þér en hugurinn og mannleg heyrn geta náð.
Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir er kennari i kundalini jóga og jóga nidra. Hún hefur sótt sjö námskeið í gongspilun; hið fyrsta árið 2015 hjá Siri Gobal Singh, þrjú árið 2017 hjá Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur og Charlotte Bom og þrjú hjá gongsnillingnum Mehtab Benton árið 2018.
Almennt verð 3.000 kr. Kaupa aðgang hér: https://www.abler.io/shop/jogasetrid
Frítt fyrir iðkendur Jógasetursins. Iðkendur bóka sig í timann: https://www.jogasetrid.is/ > BÓKA Í TÍMA
Mætið tímanlega og meldið ykkur á deski. Takk